shopify viðbót

Uppfært 

Til þess að virkja viðbótina hjá Shopify þarftu að fylgja öllum eftirfarandi skrefum.

:info:Athugið að eldri viðbót hjá Shopify (Borgun Payment Page) hætti að virka eftir 2. september 2022. Til þess að greiðslusíðan ykkar haldist virk verður þú að uppfæra í nýju viðbótina.

 

Í þessari grein förum við yfir:

Hvernig á að hlaða niður Shopify viðbótinni fyrir Teya
Hvernig á að breyta greiðslustillingum í Shopify viðbótinni fyrir Teya
Hvernig á að setja inn raun-tengiupplýsingar í Shopify

 

:info:Til þess að viðbótin virki rétt er mikilvægt fylgja öllum skrefum.

 

Hvernig á að hlaða niður og setja upp Shopify viðbótina fyrir Teya

1. Hlaða niður viðbótinni

Fara inn á slóðina og hlaða því í þína verslun (Add app → Install App)

2. Tengjast prófunar-umhverfi

  • Settu inn prófunar-tengiupplýsingar undir Teya App Configuration sem kom í tölvupósti frá sölufulltrúa.

  • Smella á tengja (Connect).

  • Haka í “Enable Test Mode” í glugganum sem opnast þegar búið er að tengja og smella á virkja Teya (Activate Teya).

3. Framkvæma prufu pöntun

Núna þarf að búa til eina prufu pöntun á heimasíðunni og klára greiðslu með prufukorti sem kom einnig í tölvupósti frá sölufulltrúa.

 

Hvernig á að breyta greiðslustillingum í Shopify viðbótinni fyrir Teya

Eftir að hafa klárað skrefin hér á undan þarf að gera eftirfarandi:

  1. Fara aftur inn í stillingar (Settings → Payments).

  2. Smella á “Manage” við Teya viðbótina.

 

2.png
 

3. Haka úr “Test Mode” og vista (save).

4. Smella á “Manage” í glugganum sem er opinn.

 

34.png

 

Hvernig á að setja inn raun-tengiupplýsingar í Shopify

Smelltu á “Reset” takkann í Teya App Configuration glugganum og skiptu út fyrir raun-tengiupplýsingar sem þú fékkst í tölvupósti frá sölufulltrúa.

:info:Mjög mikilvægt er að skipta prófunar-tengiupplýsingunum út fyrir raun-tengiupplýsingarnar

 

5.png

 

Það eina sem á eftir að gera er að smella á tengja (connect). Verslunin ykkar er nú tilbúin til að taka við greiðslum viðskiptavina! :globe_with_meridians:


Ef þú hefur einhverjar spurningar eða lendir í vandræðum með að virkja viðbótina, ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 560-1600 eða með tölvupósti á teya@teya.is og við munum svara um hæl!