Teya ID

Uppfært 

Þú getur skráð þig inn með Teya ID (auðkenni) fyrir allar okkar vörur og þjónustu með einni innskráningu. Þetta þýðir að þú munt geta notað sama netfang til að skrá þig inn á hinar ýmsu Teya vörur.

Nýr notandi og skráning

Ef þú ert að byrja hjá Teya verður þú að búa til aðgang. Smelltu á Sign up (stofna aðgang) hnappinn á innskráningarsíðunni og fylgdu leiðbeiningunum.

  1. Sláðu inn fornafn, eftirnafn, og netfang á fyrsta skjánum.

  2. Veldu lykilorð og smelltu á Búa til aðgang.

  3. Þú færð tölvupóst í pósthólfið þitt.

  4. Opnaðu tölvupóstinn og smelltu á hlekkinn til að staðfesta netfangið þitt.

Að skrá sig sem inn sem nýr notandi með Apple, Google eða Facebook aðganginum þínum er ekki mögulegt eins og er – hins vegar munum við styðja þessa virkni í framtíðinni. Eins og er geturðu aðeins notað Apple, Google eða Facebook aðganginn þinn ef þú ert núverandi viðskiptavinur Teya.

Mikilvægt: ef þú finnur ekki tölvupóstinn í aðalpósthólfinu þínu skaltu athuga auglýsingar- eða ruslpósthólfið þitt.

Skráðu þig inn sem núverandi notandi

  1. Sláðu inn netfangið þitt á Teya innskráningarsíðunni.

  2. Smelltu á hnappinn til að halda áfram.

  3. Sláðu inn lykilorð og smelltu á Skrá inn.

Þú getur annað hvort skráð þig inn með netfanginu þínu eða haldið áfram með Apple, Google eða Facebook aðganginum þínum.

Þú getur aðeins notað þennan valkost ef að netfangið þitt sem er skráð hjá Teya er það sama og á Apple, Google eða Facebook aðganginum þínum. Ef skráða netfang þitt hjá Teya er annað þá er ekki hægt að skrá sig inn með þessum möguleika.

Skráðu þig inn með Apple aðgangi

  1. Smelltu á Halda áfram með Apple.

  2. Skráðu þig inn á Apple ID.

Skráðu þig inn með Google aðgangi

  1. Smelltu á Halda áfram með Google.

  2. Skráðu þig inn á Google aðganginn þinn.

Skráðu þig inn með Facebook aðgangi

  1. Smelltu á Halda áfram með Facebook.

  2. Skráðu þig inn á Facebook aðganginn þinn.

  3. Þú færð tölvupóst í pósthólfið þitt.

  4. Opnaðu tölvupóstinn og smelltu á hlekkinn til að staðfesta netfangið þitt.

Næst þegar þú vilt skrá þig inn með Facebook þarftu ekki lengur að staðfesta tölvupóstinn þinn. Staðfestingin er aðeins nauðsynleg í fyrsta skipti sem þú skráir þig inn.

Flytja aðgang yfir í Teya ID

Ef þú ert Teya notandi en þú hefur ekki notað Teya ID innskráninguna áður, þá hefur skráða netfangið þitt verið flutt yfir í nýja innskráningarkerfið. Í flestum tilfellum verða lykilorð ekki flutt og þú verður beðin/n um að endurstilla lykilorðið þitt.

Þegar þú skráir þig inn á aðganginn þinn verður þú beðin/n um að staðfesta netfang og stilla lykilorð þitt. Notaðu netfangið sem þú skráðir þig með fyrir vörur okkar og þjónustu.

Skref eitt til fjögur geta verið örlítið breytileg, eftir því hvort netfang hefur áður verið staðfest.

1. Sláðu inn notandanafn eða netfang og smelltu á Skrá inn.

2. Smelltu á Skrá inn nýjan notanda.

3. Staðfestu netfangið þitt.

Athugið: Ef að netfang er ógilt/rangt verður þú beðin/n um að breyta því.

4. Þér verður vísað á Teya ID innskráningarsíðuna.

5. Sláðu inn netfang og smelltu á Halda áfram.

6. Staðfestu netfang með því að smella á hlekkinn sem var sendur í pósthólfið þitt.

7. Þegar búið að er að staðfesta skaltu setja nýtt lykilorð fyrir Teya innskráninguna og staðfesta með því að smella á Setja nýtt lykilorð.

Mikilvægt: ef þú finnur ekki tölvupóstinn í aðalpósthólfinu þínu skaltu athuga auglýsingar- eða ruslpósthólfið þitt.

Athugið: við fyrstu Teya innskráningu þarftu að fara í pósthólfið þitt og smella á hlekkinn í innskráningarpóstinum sem þú færð.

Gleymt lykilorð

Ef þú ert núverandi Teya notandi og hefur gleymt lykilorðinu þínu geturðu endurstillt það.

  1. Sláðu inn netfangið þitt inn á Teya innskráningarsíðunni.

  2. Þegar beðið er um lykilorð, smelltu á Gleymt lykilorð? hnappinn fyrir neðan reitinn.

  3. Þú verður beðin/n um að slá inn netfangið þitt og færð tölvupóst með leiðbeiningum um hvernig eigi að endurstilla lykilorðið þitt.

Ef þú hefur gleymt lykilorðinu þínu fyrir Apple, Google eða Facebook aðganginn þinn skaltu endurstilla lykilorðið þitt beint í gegnum einn af þessum samfélagsmiðlum.

Þú getur líka slegið inn skráða netfangið þitt á Teya innskráningarsíðunni án þess að nota Apple, Google eða Facebook. Ef þú vilt vita hvernig á að skrá þig inn eða endurstilla lykilorðið getur þú lesið Skráðu þig inn sem núverandi notandi eða Gleymt lykilorð hér fyrir ofan.

Breyta aðgangsupplýsingum (netfangi)

Farðu í Viðskiptagáttina okkar til að breyta notendanafni.

  1. Opnaðu Viðskiptagáttina.

  2. Skrá inn með Teya aðgangi.

  3. Smelltu á notandatáknið efst í hægra horninu og veldu Stjórna aðgangi.

  4. Skráðu þig aftur inn á Teya aðganginn þinn.

  5. Þér verður vísað á stillingarvalmynd.

  6. Smelltu á Breyta við hliðina á viðeigandi upplýsingum sem þú vilt breyta.

Algengar spurningar

Ef þú ert beðin/n um að skrá þig inn á Teya þýðir það að varan eða þjónustan sem þú ert að reyna að fá aðgang að er nú hluti af Teya og gamli aðgangurinn þinn hefur verið fluttur yfir. Það eina sem þú þarft að gera er að setja upp nýtt lykilorð! Þú getur nú notað sömu upplýsingar til að skrá þig inn á hvaða Teya vöru og þjónustu sem er.

Ef þú ert núverandi notandi, notaðu einfaldlega sama netfang og þú hefur verið að nota. Þú verður beðin/n um að setja upp nýtt lykilorð. Ef þú ert ekki viss skaltu nota tölvupóstinn sem þú gafst upp til söluteymisins okkar.

Þú getur prófað mismunandi netföng til að sjá hvað virkar eða haft samband við viðskiptaver okkar.

Sláðu einfaldlega inn skráða netfangið þitt og þú munt fá tölvupóst með hlekk til að setja nýtt lykilorð.

Ef þú hefur aldrei fengið tölvupóstinn fyrir uppsetningu lykilorðsins, vinsamlegast reyndu eftirfarandi:

  • Gakktu úr skugga um að þú hafir notað rétt netfang.

  • Athugaðu hvort þú notaðir rétta stafsetningu þegar þú slóst inn netfangið þitt.

  • Athugaðu ruslpóstmöppuna. Athugið: Stundum getur tekið allt að 10 mínútur fyrir póst að berast.

  • Óska eftir öðrum tölvupósti.

  • Ef þú hefur beðið um tölvupóstinn tvisvar og þú ert að nota Gmail, athugaðu þá að hann hafi ekki verið settur saman við fyrri tölvupóstinn. Stækkaðu þráð tölvupósts með því að smella á punktana þrjá neðst í síðasta tölvupósti.

Ef tölvupósturinn þinn hefur ekki borist eftir þessi skref, vinsamlegast hafðu samband við viðskiptaver okkar.

Kerfið mun vara þig við því að hlekkurinn sé útrunninn og biður þig um að slá inn tölvupóstinn þinn aftur. Þú getur líka farið til baka og byrjað ferlið aftur með því að slá inn netfangið þitt.

Ef tölvupósturinn tekur of langan tíma að berast og hlekkurinn er alltaf útrunninn, vinsamlegast hafðu samband við viðskiptaver.

Þú getur endurstillt lykilorðið þitt með því að smella á Gleymt lykilorð, eða beðið í 30 mínútur þar til læsingunni lýkur.

Í sumum tilvikum getur það tekið allt að 10 sekúndur fyrir skjáinn að breytast eftir að netfang hefur verið slegið inn.

Við geymum netfang notenda í vafrakökum til auðkenningar. Vinsamlegast skoðaðu stefnu um vafrakökur á vefsíðu okkar til að fá frekari upplýsingar.

Sem hluti af innskráningarflæðinu okkar bjóðum við upp á innskráningarmöguleika í gegnum samfélagsmiðla fyrir auðveldari og fljótari innskráningu.

Við vísum innskráningu til viðeigandi samfélagsmiðils, þannig að þér er vísað á þeirra innskráningu og síðan aftur til okkar eftir auðkenningu.

Já, svo framarlega sem tölvupósturinn á þessum aðgöngum er sá sami. Ef þú skráir þig inn í gegnum einhverja af ofangreindum samfélagsmiðlum verður þú auðkenndur á sama Teya ID.

Eins og er er þetta ekki hægt. Hins vegar munum við styðja þetta í framtíðinni.

Ekki í augnablikinu, en við erum að vinna í þessari virkni.

Já. Meðan samfélagsmiðla innskráningu stendur færð þú möguleika á að velja hvað er deilt.

Athugið: Ef þú velur að deila ekki tölvupóstinum mun það leiða til þess að aðgangurinn þinn verður ekki samþykktur.

Athugið: ef þú lendir í einhverjum erfiðleikum eða villum geturðu haft beint samband við viðskiptaver okkar og þau munu aðstoða þig.