Hér er farið yfir algeng vandamál á Teya posum varðandi tengingu, prentun, rafhlöðu og færslur.
Posinn þinn er Android tæki sem er uppsett með Teya greiðsluforriti. Svo posinn virki rétt verður hann að:
- Hafa næga rafhlöðu - Ef rafhlaðan á posanum er tóm eða lægri en 15% getur það haft áhrif á vinnslu færslna og prentun kvittana eða samantektar.
- Hafa aðgang að neti - Ef posinn þinn er hvorki tengdur við farsímanet né þráðlaust net mun hann ekki geta tekið á móti færslum og kortagreiðslur fara ekki í gegn.
- Hafa posarúllu - Ef posinn þinn er uppiskroppa með pappír, posarúllan hefur ekki verið sett í á réttan hátt eða hólfinu hefur ekki verið lokað gæti posinn átt í erfiðleikum með að prenta eða prentar ekki neitt.
- Ekki að hafa orðið fyrir skemmdum - Ef posinn hefur dottið og skemmst á einhvern hátt gæti verið að hann virki ekki lengur sem skyldi.
Vandamál með nettengingu
Posinn þinn þarf virka nettenginu til að vinna úr færslum. Ef þú sérð skilaboðin „Tengingarvilla“ eða „Samskiptavandamál“ skaltu prófa eftirfarandi:
Tengjast aftur Wi-Fi
- Smelltu á Valmynd > Posastillingar > Wi-Fi.
- Athugaðu hvort posinn sé tengdur rétta netinu.
- Ef tengingin er veik, aftengdu og tengdu þig síðan aftur við Wi-Fi til að endurstilla tenginguna.
Ef Wi-Fi netið þitt er óstöðugt færist þú sjálfkrafa yfir í fyrirfram uppsett SIM-kort.
Skjárinn á posanum er frosinn
Tækin okkar keyra á Android stýrikerfi og við mælum með að slökkva/endurræsa posann einu sinni í viku.
Fylgdu þessu skrefum ef skjárinn er frosinn:
-
Bíddu í nokkrar sekúndur
Athugaðu hvort skjárinn kvikni á sjálfum sér. -
Endurstilltu posann
Ef skjárinn er enn frosinn skaltu halda takkanum inni þar til tækið slekkur á sér. Bíddu í smástund og kveiktu svo aftur á því. -
Athugaðu nettengingu
Þegar posinn hefur endurræst sig skaltu athuga hvort Wi-Fi eða farsímanettengingin þín sé virk.
Viðhaldsráð : Til að endurræsa hann að fullu skaltu fjarlægja rafhlöðuna og setja hana aftur í eftir nokkrar sekúndur. Mikilvægt er að hafa posann ekki í sambandi meðan þetta er gert.
Komdu í veg fyrir vandamál í framtíðinni
Ef skjárinn frýs oft skaltu ganga úr skugga um að tækið þitt og öppin í posanum séu með nýjustu útgáfurnar.
Hvernig á að leita að uppfærslum:
- Flettu upp frá neðri brún skjásins og ýttu á hringlaga táknið til að fara á aðalskjáinn.
- Finndu Teya Payments appið og ýttu á punktana þrjá (⋮) við hliðina á því.
- Smelltu á Check for updates.
- Hlaðaðu niður öllum tiltækum uppfærslum og endurræstu tækið aftur.
Rafmagns- og hleðsluvandamál
Ef posinn þinn hleður ekki eða rafhlaða tæmist hratt:
- Athugaðu snúruna: Gakktu úr skugga um að USB-C snúran sé tryggilega tengd bæði við posann og dokkuna.
- Prófaðu tölvubúnaðinn: Prófaðu aðra innstungu eða aðra USB-C snúru til að útiloka bilaðan búnað.
- Endurræstu: Haltu takkanum inni í nokkrar sekúndur og veldu svo Endurstilla? Þetta getur lagað hugbúnaðarvillur sem hafa áhrif á rafhlöðuna.
Vandamál með færslur
-
Færslum er hafnað í posanum
Vinsamlegast athugaðu ástæðu höfnunar í valmyndinni undir Færslur og endurgreiðslur, hafnaðar færslur birtast rauðar í færslulistanum. - Net/tengingarvillu: Athugaðu nettenginguna þína eins og lýst er hér að ofan.
- Korti hafnað: Vandamálið er líklega hjá útgáfubanka viðskiptavinarins. Athugaðu hvort hægt sé að notað annað kort eða greiðslumáta.
Ef ekki er hægt að leysa vandamálið eftir að hafa lokið öllum skrefunum gæti þurft að skipta út posanum.