Greinar um þetta efni

Virkja og taka við greiðslubeiðnum

Greiðslubeiðnir eru notaðar til að taka á móti greiðslum hratt og örugglega ef viðskiptavinur er ekki á staðnum. Með Teya getur þú auðveldlega sent greiðslubeiðnir til viðskiptavina þinna í gegnum tölvupóst, SMS eða QR kóða. Hægt að senda úr posanum þínum, appi eða þjónustuvef til viðskiptavinar og þegar búið er að greiða birtist færslan eins og hver önnur. Það er svo einfalt!

Áður en þú byrjar

Skilyrði

Flestir notendur á samningnum þínum geta stofnað greiðslubeiðnir þegar þú hefur lokið við áreiðanleikakönnun. Hafðu samband við þjónustuver Teya ef þú sérð ekki Greiðslubeiðnir í posanum þínum, Teya appinu eða þjónustuvef Teya og við skoðum þetta með þér.

Færslugjöld og uppgjör

  • Kostnaður: Það fylgir engin viðbótarkostnaður við notkun á greiðslubeiðnum. Þú munt áfram borga það sem samið var um í þínum samningi.
  • Uppgjör: Greiðslubeiðnir eru unnar á sama hátt og aðrar færslur og þú færð uppgjör eins og venjulega.

Hvernig virkja ég greiðslubeiðnir?

Á posa

Virkja greiðslubeiðnir

Fyrst þarf að virkja eiginleikann á posanum þínum.

  1. Opnaðu Valmyndina í efra horninu.
  2. Opnaðu Greiðslustillingar.
  3. Sláðu inn PIN-númer.
  4. Hakaðu í Greiðslubeiðnir til að virkja eiginleikann. 

Hvernig sendi ég greiðslubeiðni ? 

  1. Opnaðu Greiðslubeiðnir í valmyndinni
  2. Smelltu á Ný Greiðslubeiðni.
  3. Settu inn upphæðina
  4. Sláðu inn upphæð greiðslubeiðnar. 
  5. Bættu við tilvísunarnúmeri til að halda utan um færsluna
  6. Veldu hvernig þú ætlar að senda greiðslubeiðnina
    • Senda með SMS: Passa að vera með viðeigandi landskóða og setja síðan inn símanúmer viðskiptavins. 
    • Senda með tölvupósti: Sláðu inn netfang viðskiptavinar.
  7. Senda beiðni
    • Posinn ætti að sýna staðfestingu að Beiðni sé send. Þá er greiðslubeiðnin virk og mun haldast þannig þangað til að viðskiptavinur hefur greitt eða beiðnin rennur út.

Gildistími

Hver greiðslubeiðni á posanum er með ákveðinn gildistíma. Þegar tíminn rennur út er ekki hægt að nota greiðslubeiðnina aftur.

Til að breyta sjálfgefnum gildistíma:

  1. Opnaðu Valmyndina.
  2. Smelltu á Greiðslustillingar.
  3. Sláðu inn PIN-númer
  4. Undir Greiðslubeiðnir er hægt að velja 30 mínútna gildistími eða 24 tíma gildistíma.

Það er ekki í boði að velja lengri eða sérsniðna gildistíma á posum Teya. Einungis er hægt að sérsníða gildistíma greiðslubeiðna á þjónustuvef Teya og Teya appinu.

Teya appið

Notaðu Teya appið til að senda greiðslubeiðnir úr símanum þínum ef þú ert ekki við posann þinn.

  1. Skráðu þig inn á Teya appið
  2. Smelltu á Selja og veldu Greiðslubeiðnir.
  3. Settu inn upphæðina og skráðu upplýsingar viðskiptavinar (símanúmer eða netfang, fer eftir hvernig þú vilt senda beiðnina).
  4. Bættu við lýsingu (Valfrjálst) 
    • Til dæmis pöntunar- eða bókunarnúmeri (t.d. Pöntun #1025). Þessi tilvísun birtist í Teya appinu, þjónustuvef Teya og á uppgjörsyfirlitum sem auðveldar yfirsýn.
  5. Veldu hversu lengi beiðnin eigi að vera virk.
  6. Sendu greiðslubeiðnina með SMS, netfangi eða QR kóða.
Þjónustuvefur Teya

Opnaðu þjónustuvef Teya í tölvunni þinni.

  1. Skráðu þig inn á þjónustuvef Teya
  2. Smelltu á Greiðslubeiðnir
    • Hægt er að smella á Ný greiðslubeiðni á Heim síðunni eða fara inn í Sala og smella á á Stofna greiðslubeiðni. 
  3. Veldu upphæðina og skráðu annað hvort símanúmer eða netfang viðskiptavinar.
  4. Bættu við lýsingu (Valfrjálst) 
    • Til dæmis pöntunar- eða bókunarnúmeri (t.d. Pöntun #1025). Þessi tilvísun birtist í Teya appinu, þjónustuvef Teya og á uppgjörsyfirlitum sem auðveldar yfirsýn.
  5. Skilgreindu vörur í körfu þannig að viðskiptavinir sjái nákvæmlega hvað þeir eru að greiða fyrir í greiðsluferlinu og á kvittunum.

  6. Veldu hversu lengi beiðnin eigi að vera virk.
  7. Sendu greiðslubeiðnina með SMS, netfangi eða QR kóða.

Fleiri valkostir á Þjónustuvef Teya

Þegar þú stofnar Greiðslubeiðni á Þjónustuvef Teya færðu aðgang að fleiri valkostum:  

  • Sveigjanlegur gildistími: Veldu lengri eða sérsniðinn gildistíma eða búðu til greiðslubeiðni án gildistíma fyrir einstakar greiðslur sem geta staðið yfir lengi. 
  • Stjórna greiðslubeiðnum: Breyttu gildistíma, hættu við greiðslubeiðnir sem voru sendar fyrir mistök eða virkja aftur ógreiddar/útrunnar greiðslubeiðnir sem á enn að nota.
  • Safnaðu viðbótarupplýsingum um viðskiptavini: Óskaðu eftir samskiptaupplýsingum og heimilisfangi svo þú sjáir þær upplýsingar á Þjónustuvefnum og í appinu samhliða greiðslunni.
  • Velja tungumál: Sendu greiðslubeiðnir á öðru tungumáli fyrir tiltekna viðskiptavini, þannig að bæði skilaboðin og greiðslusíðan birtist á viðeigandi tungumáli.
  • Afhendingarmáti: Sendu hlekki með tölvupósti eða SMS beint frá Teya, afritaðu hlekkinn til að senda í gegnum þínar boðleiðir (til dæmis í gegnum þitt netfang, WhatsApp eða reikninga), eða notaðu QR kóða sem viðskiptavinir geta skannað.
  • Tilkynningar um greiðslur: Kveiktu á tilkynningum fyrir greiðslubeiðnir fyrir hvern samning svo þú fáir tilkynningu í pósthólfið í hvert sinn sem greiðslubeiðni hefur verið greidd. 

Upplifun viðskiptavinarins

  • Viðskiptavinurinn fær örugga greiðslubeiðni með SMS, netfang eða öðrum boðleiðum að þínu eigin vali. 
  • Þegar opnað er hlekkinn er viðskiptavinur sendur á greiðslusíðu Teya.
  • Hann klárar greiðsluna með korti eða stafrænu veski (ApplePay t.d.).
  • Þegar greiðslu er lokið birtist færslan í Teya appinu þínu, á þjónustuvef Teya og uppgjörsyfirlitum eins og hver önnur færsla. 
Var þessi grein gagnleg?
2 af 5 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig