Greinar um þetta efni

Bæta við eða uppfæra bankareikning

Í Teya appinu getur þú bætt við nýjum bankareikningi, breytt uppgjörsreikningi eða tengt bankareikning við tiltekinn samning. Þessar leiðbeiningar útskýra hvernig þú gerir þetta og hvaða upplýsingar þú þarft að hafa til taks.

Áður en þú byrjar

Gakktu úr skugga um að bankareikningurinn uppfylli eftirfarandi skilyrði:

  • Bankareikningurinn verður að vera í sama landi og gjaldmiðli og Teya aðgangurinn þinn.
  • Nafn bankareikningsins verður að vera það sama og nafn lögaðilans sem er skráður hjá Teya.
  • Ef þú ert með einstaklingsrekstur getur þú notað bankareikning í eigin nafni eða á nafni rekstrarins.

  • Ef þú ert með ehf., hf., slf., félagasamtök eða stofnun þarf bankareikningurinn að vera skráður á fyrirtækið eða lögaðilann, ekki á persónulegan bankareikning.

Hvernig bæti ég við eða breyti bankareikningi?

Byrjaðu á að opna bankareikningsstillingarnar þínar:

  1. Opnaðu Teya appið.
  2. Á heimasíðunni skaltu smella á + hnappinn. Einnig geturðu smellt á nafn fyrirtækisins efst á skjánum til að opna hliðarvalmyndina.
  3. Veldu Bankareikningar.
  4. Ýttu á + hnappinn efst í hægra horninu.
  5. Farðu á skjáinn Bæta við bankareikningi.

Sláðu bankaupplýsingar inn handvirkt

Ef þú vilt ekki tengja bankann þinn beint getur þú slegið bankaupplýsingarnar inn handvirkt.

Til að tengja reikninginn þinn handvirkt:

  1. Hafðu bankanúmer, höfuðbók, reikningsnúmer og nákvæmt nafn reikningshafa tilbúið.
  2. Sláðu inn bankanúmerið þitt og reikningsnúmerið í appið.
  3. Sláðu inn nafn reikningshafa nákvæmlega eins og það birtist hjá bankanum.

  4. Appið mun sjálfkrafa yfirfara bankaupplýsingarnar.

Hvernig tengi ég bankareikning við samning?

Þegar þú hefur bætt við nýjum bankareikningi þarftu að tengja hann við réttan samning svo uppgjör fari inn á réttan reikning.

  1. Opnaðu Bankareikningar.

  2. Veldu bankareikninginn sem þú vilt nota.

  3. Ýttu á Tengja samning.
  4. Veldu þann samning eða þá samninga sem eiga að fá uppgjör inn á þennan reikning.
  5. Staðfestu valið.

Framtíðaruppgjör verða greidd inn á nýja reikninginn. Uppgjör sem eru þegar komin í vinnslu verða greidd inn á fyrri reikning.

Get ég notað mismunandi bankareikninga fyrir mismunandi samninga?

Já. Þú getur bætt við fleiri en einum bankareikningi og tengt mismunandi reikninga við mismunandi samninga.

Svona virkar það:

  • Bættu við þeim bankareikningum sem þú vilt nota.

  • Hver bankareikningur er yfirfarinn sérstaklega.

  • Opnaðu Bankareikningar.

  • Veldu bankareikninginn sem þú vilt nota.

  • Ýttu á Tengja samninga.

  • Veldu þann samning eða þá samninga sem þú vilt tengja við reikninginn.

⚠️ Mikilvægt: Hver samningur getur aðeins verið tengdur við einn bankareikning í einu.

Hvað gerist þegar Teya fer yfir bankareikninginn minn?

Þegar þú bætir við bankareikningi ber Teya sjálfkrafa nafn reikningshafa saman við fyrirtækjaupplýsingar þínar.

Hvernig get ég komið í veg fyrir vandamál?

Ef þú slærð bankaupplýsingarnar inn handvirkt skaltu fylgja þessum skrefum til að auka líkur á að staðfestingin gangi í gegn í fyrstu tilraun:

  • Notaðu nákvæmlega sama nafn og er á bankareikningnum þínum
  • Skoðaðu nýlegt bankayfirlit ef þú ert ekki viss
  • Fyrir hlutafélög skaltu slá inn nafn fyrirtækisins nákvæmlega eins og það er skráð
  • Gakktu úr skugga um að bankanúmer, höfuðbók og reikningsnúmer séu rétt.

  • Athugaðu sérstaklega að engar tölur hafi víxlast.

Dæmi: Ef nafnið á bankareikningnum þínum er J Smith Trading, ekki slá inn John Smith.

Af hverju mistókst auðkenningin mín?

Ef staðfesting tekst ekki er það yfirleitt vegna þess að nafnið á bankareikningnum passar ekki við nafnið sem er skráð hjá Teya.

Algengar ástæður eru meðal annars:

  • Bankareikningurinn er í persónulegu nafni en Teya aðgangurinn er skráður á fyrirtæki.

  • Stafsetning eða framsetning nafnsins er ekki sú sama hjá bankanum og hjá Teya.

  • Nafn eða rekstrarform fyrirtækisins hefur breyst en upplýsingar hjá Teya hafa ekki verið uppfærðar.

Hvað get ég gert?

  • Berðu saman nafnið á bankayfirlitinu þínu við nafnið sem er skráð hjá Teya
  • Ef upplýsingar um fyrirtækið þitt hafa breyst skaltu uppfæra þær í Stillingar > Upplýsingar um fyrirtækið
  • Reyndu síðan að tengja bankareikninginn aftur

Hvenær þarf ég að hafa samband við þjónustuver Teya?

Flestar breytingar á bankareikningum er hægt að gera í appinu. Þú þarft að hafa samband við þjónustuverið ef:

  • þú ert með virka fyrirfram fjármögnun
  • auðkenningin mistekst ítrekað eftir að þú hefur yfirfarið upplýsingarnar þínar
  • þú ert ekki viss um hvort þetta hafi tekist

Fljótleg svör

Get ég haft fleiri en einn bankareikning?

Já. Þú getur bætt við mörgum bankareikningum og tengt þá við mismunandi samninga.

Hvað gerist við uppgjör sem eru þegar í vinnslu?

Uppgjör sem eru þegar komin í vinnslu fara áfram inn á fyrri bankareikning. Aðeins framtíðaruppgjör fara inn á nýja reikninginn.

Ég breytti bankareikningnum mínum en uppgjörið barst ekki. Hvað gerðist?

Gakktu úr skugga um að nýi bankareikningurinn sé tengdur við réttan samning undir Bankareikningar. Ef breytingin var gerð eftir að uppgjör var þegar komið í vinnslu fer það uppgjör inn á gamla reikninginn.

Var þessi grein gagnleg?
9 af 12 fannst þessi grein gagnleg

Erum þér innan handar

  • Hafðu samband

    Þjónustufulltrúar okkar eru alltaf tilbúnir að aðstoða þig. Fáðu skjót svör í rauntíma og prófaðu að spjalla við gervigreind Teya.

  • Sendu okkur tölvupóst hvenær sem er

    Ertu með spurningar eða vantar aðstoð? Sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og auðið er!