Uppgjörsskýrslur hjálpa þér að fylgjast með færslum, gjöldum og greiðslum. Þú getur valið að fá skýrslurnar sjálfkrafa til að einfalda daglegan og mánaðarlegan rekstur.
Teya sendir skýrslur á netfangið sem þú skráðir þegar þú virkjaðir aðganginn þinn.
- Daglegar skýrslur: Sendar á hverjum morgni. Þær sýna færslur og frádrætti fyrir uppgjörstímabil síðasta dags.
- Mánaðarskýrslur: Sendar fyrsta virka dag mánaðarins. Þær taka saman helstu upplýsingar um virkni síðasta mánaðar.
Daglegar skýrslur fylgja uppgjörstíðni þinni. Ef þú ert með uppgjör á virkum dögum færðu skýrslur frá mánudegi til föstudags. Ef uppgjörstíðnin þín er tímasettar greiðslur færðu skýrslur samkvæmt þeirri áætlun.
Að fá uppgjörsskýrslur í tölvupósti
Þú hefur fulla stjórn á uppgjörstilkynningunum þínum. Í Teya appinu og á þjónustuvefnum getur þú kveikt eða slökkt á tölvupóststilkynningum, stjórnað netföngum viðtakenda og valið hversu oft þú færð uppgjörsskýrslur sendar.
Nánari upplýsingar er að finna í leiðbeiningunum fyrir Samskiptastillingar.
Svona finnurðu skýrslurnar þínar
Þú getur fundið og sótt skýrslurnar þínar í tölvupósti, í Teya appinu eða á þjónustuvefnum.
- Farðu í pósthólfið fyrir skráða netfangið þitt.
- Leitaðu að efnislínunni „Dagleg uppgjörsskýrsla“ eða sendandanum noreply@teya.com.
- Opnaðu tölvupóstinn og sæktu meðfylgjandi PDF skjal.
- Opnaðu Teya appið og veldu Fjármál í valmyndinni neðst.
- Veldu Uppgjör efst á skjánum.
- Smelltu á niðurhalshnappinn efst í hægra horninu.
- Veldu tímabil, stöðu og skráarsnið.
- Smelltu á Búa til skrá.
EÐA
- Opnaðu Teya appið og veldu Fjármál í valmyndinni neðst.
- Veldu Uppgjör efst á skjánum.
- Skunaðu neðst á skjáinn.
- Smelltu á Sækja skýrslu.
- Veldu tímabil, stöðu og skráarsnið.
- Smelltu á Búa til skrá.
- Farðu á þjónustuvefinn og skráðu þig inn með innskráningarupplýsingum þínum (Teya ID).
- Veldu Uppgjör undir Fjármál í vinstri valmyndinni.
- Smelltu á Sækja.
- Veldu hvort þú vilt sækja daglega eða mánaðarlega skýrslu og veldu viðeigandi tímabil.
- Smelltu aftur á Sækja til að hlaða skránni niður.
Hvað stendur í skýrslunni þinni?
Skýrslan veitir heildaryfirsýn yfir fjármál fyrirtækisins fyrir valið tímabilið.
| Hluti skýrslunnar | Upplýsingar |
|---|---|
| Upplýsingar um fyrirtækið | Nafn rekstursins, samningsnúmer (MID), bankareikningurinn sem Teya greiðir inn á og verðlagningin þín. |
| Upphæð uppgjörs | Lokaupphæðin sem verður greidd inn á bankareikninginn þinn, eftir þjónustugjöld og aðra frádrætti. |
| Staða uppgjörs | Núverandi staða uppgjörsins. |
| Söluyfirlit | Yfirlit yfir tímabilið, þar á meðal upphafsstaða, hreyfingar, sala, endurgreiðslur, gjöld og lokastaða. |
| Sala | Heildarsala sundurliðuð eftir kortategund, til dæmis Visa og Mastercard. |
| Þjórfé | Heildarupphæð þjórfés sem kom inn á tímabilinu. Þessi hluti birtist aðeins ef þjórfé er virkt. |
| Söluupplýsingar | Ef þú ert með fleiri en einn posa sýnir þessi hluti færslur, sölu og endurgreiðslur fyrir hvern posa. |
| Upplýsingar um uppgjör | Sundurliðun á því hvernig endanleg uppgjörsupphæð er reiknuð út, svo þú sjáir hvern frádrátt og hvað verður greitt út. |
Algengar spurningar
-
Af hverju hef ég ekki fengið skýrsluna mína?
Ef þú finnur ekki daglegu eða mánaðarlegu skýrsluna þína skaltu prófa eftirfarandi:
- Staðfestu að þú hafir valið að fá uppgjörsskýrslur sendar með tölvupósti í samskiptastillingunum þínum í Teya appinu eða á þjónustuvefnum. Ef þú hefur ekki valið að fá daglegar skýrslur færðu þær ekki sendar með tölvupósti.
- Athugaðu ruslpóstmöppuna þína.
- Leitaðu að noreply@teya.com í pósthólfinu þínu.
- Gakktu úr skugga um að þú sért að skoða netfangið sem notað var við skráningu.
-
Hvers vegna er misræmi í upphæðinni?
Ef upphæðin er önnur en þú bjóst við skaltu bera bankagreiðsluna saman við Heildarupphæð greidd í skýrslunni.
Skýrslan sýnir bæði heildarupphæð færslna, þ.e. söluna, og heildarupphæðina sem greidd er út og lögð inn á bankareikninginn þinn. Þjónustugjöld og aðrir frádrættir, svo sem mínusstaða vegna endurgreiðslu, eru dregnir frá heildarsölunni áður en uppgjörið er greitt út.