Teya, í samstarfi við Liberis, kynnir með stolti nýja fjármögnunarleið fyrir viðskiptavini Teya – Fyrirfram fjármögnun Teya. Fyrirfram fjármögnun Teya veitir fyrirtækinu þínu aðgang að fjármagni til að grípa ný tækifæri eða takast á við óvænt útgjöld. Hvort sem það er til að standa straum af auknum kostnaði, stækka fyrirtækið, eða einfaldlega gera rekstur þinn skilvirkari, þá getur þessi fjármögnunarleið hjálpað þér að ná þínum markmiðum.
Fjármögnun
Fyrirfram fjármögnun er ætluð þeim rekstrum sem taka við meirihluta veltunnar sinnar í gegnum greiðslulausnir Teya.
- Fyrirfram fjármögnun Teya er ekki lán: Fyrirfram fjármögnun Teya er önnur tegund fjármögnunar sem, ólíkt láni, ber hvorki vexti né fasta gjalddaga á innborgunum.
- Greiðslur innheimtar: Samið fast prósentuhlutfall er sjálfkrafa dregið af daglegu uppgjöri kortaveltu þar til fjármögnunin hefur verið greidd upp að fullu. Við rukkum einungis af kortaveltu sem á sér stað.
- Ótakmörkuð notkun: Fyrirfram fjármögnun Teya veitir rekstrinum þínum aðgang að fjármagni til að grípa ný tækifæri eða takast á við óvænt útgjöld, hvort sem það er til að standa straum af auknum kostnaði, stækka fyrirtækið eða einfaldlega gera rekstur þinn skilvirkari.
Afborganir
Fast prósentuhlutfall er sjálfkrafa dregið af daglegu uppgjöri kortaveltu þar til fjármögnunin hefur verið greidd upp að fullu. Það verður að greiða að minnsta kosti 3% af fjármögnuninni mánaðarlega til Liberis. Ef það er engin sala hjá þér eða ef þú nærð ekki að greiða lágmarksgreiðsluna þá þarftu ekki að hafa áhyggjur. Við rukkum einungis af kortaveltu sem á sér stað. Ef þú sérð fram á að það verði engin kortavelta í sjö daga eða meira biðjum við þig vinsamlegast um að hafa samband við okkur og láta vita. Ef þú nærð ekki lágmarkinu í 28 daga í röð eða átt í erfiðleikum með að greiða samkvæmt áætlun verður þú að hafa samband við Liberis til að skoða hvað er hægt að gera til að aðstoða þig.
- Heildarupphæðin sem þú greiðir til baka nemur sömu upphæð og þú færð greidda út í upphafi auk fastrar þóknunar sem leggst á höfuðstólinn einu sinni. Enginn annar kostnaður fylgir.
- Þú getur greitt fjármögnunina upp í einni greiðslu hvenær sem er. Til þess að gera það getur þú haft samband við okkur og fengið frekari upplýsingar. Heildarkostnaður breytist ekkert þó fjármögnunin sé gerð upp fyrr.
Upplýsingar um frádrátt vegna greiðslna af Fyrirfram fjármögnun Teya koma fram á yfirliti kortauppgjörs. Vinsamlegast hafðu samband við Liberis í síma 800 4485 ef þú vilt breyta greiðslutilhögun á fyrirfram fjármögnun.
Ef þú samþykkir greitt með til dæmis 10% af sölu dagsins þá gæti áætlun litið svona út:
- Dagur 1: 1.000.000 kr. kortavelta → 100.000 kr. dregið af daglegu uppgjöri og fer beint í afborgun á fyrirfram fjármögnun.
- Dagur 2: 500.000 kr. kortavelta → 50.000 kr. dregið af daglegu uppgjöri og fer beint í afborgun á fyrirfram fjármögnun.
- Dagur 3: 0 kr. kortavelta → 0 kr. dregið af daglegu uppgjöri og fer beint í afborgun á fyrirfram fjármögnun.
Greiðslutímabilið fer eftir viðskiptasögu þinni hjá Teya. Þú ættir að fá uppgefinn tímaramma strax í upphafi samnings en algengast er að hann sé 6–12 mánuðir.
Hæfnismat
Teya og Liberis meta hvort þú sért hæfur umsækjandi eftir fjölda mismunandi þátta, til dæmis er horft til þess tíma sem þú hefur verið í færsluhirðingu hjá Teya, heildarveltu og fjölda færslna ásamt öðrum viðskiptaupplýsingum. Til viðbótar við lágmarkskröfur og skilyrði eru aðrir þættir sem gætu haft áhrif á hæfnismatið þitt og hámarksheimild á fyrirfram fjármögnunar. Þeir eru m.a.:
- Góð viðskiptasaga – til dæmis að hafa verið með stöðuga veltu sýnir fram á áreiðanleika rekstursins og hefur áhrif á hæfnismat.
- Veltuaukning fyrirtækisins hjá Teya hefur áhrif á heimildina þína fyrir fyrirfram fjármögnun. Vöxtur fyrirtækis hefur jákvæð áhrif á hæfnismat.
Reiknilíkanið okkar byggir að stórum hluta á kortaveltunni þinni hjá Teya. Það að flytja þjónustu um kortaveltu frá öðrum færsluhirðum til Teya og auka þar með veltuna þar, eykur líkur á að teljast sem hæfur umsækjandi.
Við framkvæmum hæfnismat mánaðarlega. Ef þú ert metinn sem hæfur umsækjandi þá færðu tölvupóst frá okkur með hlekk til að sækja um.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi hæfnismatið þitt vinsamlegast hafðu samband við Liberis í síma 800 4485.
Fyrir frekari upplýsingar varðandi skilmála og persónuvernd smelltu hér.
Greiðslumat
Eftir að þú skilar inn umsókn mun Liberis nota nokkrar leiðir til að skilja reksturinn þinn og meta greiðslugetu. Liberis skoðar m.a. lánshæfismat fyrirtækja og einstaklinga hjá lánshæfismatsfyrirtækjum. Að sækja um hjá Liberis hefur ekki áhrif á lánshæfismatið þitt.
- Fyrirfram fjármögnun Teya virkar ekki eins og hefðbundið lán og því þarf ekki að veðsetja eignir fyrir greiðslunni.
*Það er gerð krafa um persónulega ábyrgð ef þú ert að sækja um fyrir hönd félags sem er með rekstrarform með takmarkaðri ábyrgð, til dæmis ehf. og hf.
Hvernig sæki ég um fyrirfram fjármögnun Teya?
- Ef þú sem söluaðili uppfyllir skilyrði kemur þú til með að fá tilboð frá okkur í tölvupósti með hlekk til að sækja um. Þegar þú hefur sótt um þá upphæð sem þú óskar eftir innan fyrirfram gefinna marka kemur Liberis, samstarfsaðili okkar, til með að vera í sambandi við þig varðandi afgreiðslu umsóknarinnar.
- Til að klára umsóknina þína mun Liberis framkvæma áreiðanleikakönnun á fyrirtækinu þínu. Þegar því er lokið og áreiðanleikakönnunin samþykkt munt þú fá peninginn greiddan út.
- Við framkvæmd áreiðanleikakönnunar mun Liberis meðal annars skoða greiðslugetu, lánshæfismat, veltu og fleira.
Þú færð greitt um þremur dögum eftir að umsókn þín hefur verið samþykkt. Tilboðin eru virk í 30 daga; ef tilboð rennur út færð þú tilkynningu ef þú uppfyllir skilyrði fyrir nýtt tilboð.
Viðbótar fjármögnun
Þú getur ekki breytt upphæð fjármögnunarinnar eftir að þú hefur fengið Fyrirfram fjármögnun Teya. Hins vegar er mögulegt að fá viðbótar fjármögnun eftir að þú hefur greitt til baka 80% af upprunalegu fjármögnuninni. Athugaðu Fyrirfram fjármögnun hlutan á þjónustuvef eða í Teya appinu fyrir fáanleika.
Fært mig annað í færsluhirðingu
Á meðan þú ert að greiða af Fyrirfram fjármögnun Teya þarftu að halda áfram að vera í færsluhirðingu hjá Teya.
Skráningar og samskipti
Ef þú átt í vandræðum með að skrifa undir samninginn, hvað get ég gert? Vinsamlegast hafðu samband við Liberis í síma 800 4485.
Ef þú vilt hafna tilboðinu veldu „Segja upp áskrift“ (Unsubscribe) neðst í tölvupóstinum sem þú fékkst frá okkur varðandi Fyrirfram fjármögnun Teya.