Greinar um þetta efni

Athuga stöðu Greiðslubeiðnar

Notaðu Greiðslubeiðni á posanum á þjónustuvefnum eða í Teya appinu til að fylgjast með stöðu greiðslubeiðna sem þú hefur sent viðskiptavinum.

Posi

  1. Ýttu á Teya táknið efst til vinstri á skjánum.
  2. Veldu Greiðslubeiðnir.
  3. Notaðu síur (eins og dagsetningu, upphæð eða stöðu) til að finna greiðslubeiðnina.
  4. Smelltu á greiðslubeiðnina til að skoða stöðu hennar og nánari upplýsingar. Þú getur einnig afritað eða deilt hlekknum, breytt gildistímanum eða afturkallað beiðnina.

Teya appið

  1. Opnaðu Teya appið og smelltu á Sala í valmyndinni neðst á skjánum.
  2. Smelltu á Greiðslubeiðnir efst á skjánum.
  3. Notaðu síur (eins og dagsetningu, upphæð eða stöðu) til að finna greiðslubeiðnina.
  4. Smelltu á greiðslubeiðnina til að skoða allar upplýsingar um hana og stöðu hennar. Þú getur einnig afritað eða deilt hlekknum, breytt gildistímanum eða afturkallað beiðnina.

Þjónustuvefur Teya

  1. Farðu á þjónustuvefinn og skráðu þig inn.
  2. Veldu Greiðslubeiðnir undir Sala í valmyndinni vinstra megin.
  3. Notaðu leitarstikuna eða síur (eins og dagsetningu, upphæð, stöðu eða tegund) til að finna greiðslubeiðnina.
  4. Smelltu á greiðslubeiðnina til að skoða upplýsingar um hana og stöðu hennar. Þar getur þú einnig afritað eða deilt hlekknum, breytt gildistímanum eða afturkallað beiðnina.

Staða greiðslubeiðni

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir allar mögulegar stöður greiðslubeiðna og hvað þær þýða:

GreiddViðskiptavinur hefur greitt greiðslubeiðnina. Greiðslan mun koma á næsta uppgjöri. 
VirktBeiðnin hefur verið stofnuð og er virk, en viðskiptavinur á eftir að greiða
ÚtrunninViðskiptavinurinn greiddi ekki beiðnina áður en greiðsluhlekkurinn rann út. Því þarf að búa til nýja greiðslubeiðni og senda hana til viðskiptavinarins.
ÓvirkViðskiptavinurinn getur ekki lengur greitt beiðnina, til dæmis vegna þess að hún hefur verið afturkölluð eða gerð óvirk. Ef enn á að innheimta greiðsluna þarf að búa til nýja greiðslubeiðni og senda hana til viðskiptavinarins.
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Erum þér innan handar

  • Hafðu samband

    Þjónustufulltrúar okkar eru alltaf tilbúnir að aðstoða þig. Fáðu skjót svör í rauntíma og prófaðu að spjalla við gervigreind Teya.

  • Sendu okkur tölvupóst hvenær sem er

    Ertu með spurningar eða vantar aðstoð? Sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og auðið er!