Raðgreiðslulán Teya eru lán fyrir einstaklinga þar sem þú getur dreift greiðslum fyrir stærri kaup á þægilegan hátt, í mánaðarlegum afborgunum.
Almennar spurningar Teya
-
Algengar ástæður höfnunar:
- Lánamörk eru ekki nógu há. Lánaheimild byggist á lánshæfismati hjá Creditinfo. Hægt er að sjá lánamörk og upplýsingar um öll lánin á þinni kennitölu með því að skrá sig inn hér: http://radgreidslur.is/
- Ekki er hægt að nota debetkort, fyrirframgreitt kreditkort eða fyrirtækjakort.
- Hámarksfjöldi virkra lána er 5, ef því er náð er ekki hægt að stofna nýtt lán.
- Kort er útrunnið, rangt öryggisnúmer eða rangar upplýsingar í umsókn.
- Lántaki uppfyllir ekki 20 ára aldurstakmark.
- Lántaki er ekki með lögheimili á Íslandi.
-
Almennt er hægt að dreifa greiðslum allt frá 2 og upp í 36 mánuði. Lágmarks lánstími ræðst einnig af reglugerð neytendastofu um Árlega hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK).
- Þú sækir um raðgreiðslulán hjá verslunum og þjónustuaðilum sem bjóða upp á þau við kassa eða greiðslusíðu í vefverslun. Það þarf ekki að sækja neitt app eða forskrá sig neins staðar.
- Kostnaður og kjör vegna raðgreiðslulána má finna í verðskrá Teya (Verðskrá).
- Mánaðarlega er dregið af kreditkortinu þínu, sem þú skráðir á lánið við stofnun þess, á tímabilinu 15.–26. hvers mánaðar fyrir næsta gjalddaga. Ef ekki tekst að skuldfæra kortið kemur greiðsluseðill í heimabanka með næsta ógreidda gjalddaga.
-
Þú getur séð hversu mörg lán og heildarupphæð skuldar inni á raðgreiðsluvef Teya.
-
Með því að skrá þig inn hér með rafrænum skilríkjum getur þú séð allar upplýsingar um lánin þín, eftirstöðvar, mánaðarlegar greiðslur, lánaheimild og afrit af lánasamningum.
-
Þú getur greitt upp eða greitt aukalega inn á lánið þitt með korti á raðgreiðsluvefnum okkar.
- Ef þú þarft að endurnýja eða uppfæra kortaupplýsingarnar á láninu skaltu hafa samband við þjónustuver Teya í síma 560 1600. Ekki senda kortanúmer í tölvupósti eða netspjalli.