Hér eru svör við helstu spurningum sem við fáum frá seljendum varðandi Raðgreiðslulán.
- Með því að bjóða upp á Raðgreiðslur Teya eykur þú þjónustu og möguleika á frekari viðskiptum. Greiðslumöguleikinn getur hjálpað viðskiptavinum að dreifa kostnaði og auðveldað þeim að klára kaup.
- Raðgreiðslur Teya gera viðskiptavinum þínum kleift að skipta greiðslum mánaðarlega fyrir þær vörur og þjónustu sem þeir versla hjá þér.
- Raðgreiðslulán Teya eru gerð upp eins og önnur kortauppgjör þ.e.a.s. næsta virka dag. Fyrir seljanda er því uppgjörsferlið sambærilegt við hefðbundnar kortagreiðslur.
- Nánari upplýsingar um kjör á Raðgreiðslulánum Teya má finna í verðskrá okkar. (Verðskrá)
- Já, þú getur boðið viðskiptavinum þínum sama sveigjanlega greiðslumöguleika óháð því hvort salan fer fram í verslun eða á netinu.
- Starfsmaður sér um að stofna lánið fyrir viðskiptavin þegar það kemur að greiðslu - eða viðskiptavinur velur að dreifa greiðslum í gegnum netið á heimasíðu verslunarinnar.
- Þú þarft að vera með viðskiptasamning hjá Teya til að bjóða upp á Raðgreiðslur.
- Ef þú vilt vita meira um Raðgreiðslur Teya og bjóða viðskiptavinum þínum upp á þennan greiðslumöguleika, endilega hafðu samband við okkur á hjalp@teya.is og við aðstoðum þig í gegnum umsóknarferlið.