Í þessari grein eru leiðbeiningar hvernig á að tengja Teya posa við dk, þar á meðal dkPos, dkVerslunareiningu og dkIPOS/POS app. Hér fyrir neðan er farið yfir uppsetningu og móttöku greiðslna með Teya í gegnum dk lausnirnar.
Settu upp tengingu milli Teya Payments og dkog sendu færslur úr einu kerfi í annað í nokkrum skrefum.
dkPOS
Skref 1: Tengdu Teya aðganginn þinn
- Skráðu þig inn í dkPOS með starfsmanna- eða verslunaraðgangi.
- Smelltu á Aðgerðir.
- Smelltu á Stillingar.
- Opnaðu Posar flipann.
- Í POS Terminal type, veldu Teya.
-
Smelltu á Authenticate hnappinn.
- Skannaðu QR kóðann með símanum þínum.
- Skráðu þig inn með Teya aðgangnum þínum.
- Þú færð tilkynningu um að auðkenning hafi tekist.
Athugið – Fyrir frekari upplýsingar um innskráningu með Teya aðganginum þínum getur þú skoðað þessa grein – Teya ID.
Skref 2: Veldu verslun (e. Store)
- Veldu viðeigandi verslun.
Athugið – Þú getur alltaf endurnýjað store-listann með því að ýta á Get available stores hnappinn.
Skref 3: Veldu posa
- Veldu þann posa sem þú vilt tengja við dkPOS.
Athugið – Þú getur alltaf endurnýjað terminal listann með því að ýta á Get terminals in store hnappinn.
Þegar þú hefur valið verslun og posa skaltu ekki gleyma að vista stillingar – F12.
Að hefja greiðslu
- Byrjaðu greiðslu með því að velja vöru og smella á Kort/greiðsla hnappinn.
- Þetta mun senda greiðslubeiðni í posann.
- Þegar greiðslu er lokið mun kvittun prentast.
Endurgreiða færslu
- Til að endurgreiða síðustu sölu, smelltu á Bakfæra hnappinn.
- Ýttu á Kort hnappinn aftur til að hefja endurgreiðsluna.
- Ýttu á Staðfesta að klára endurgreiðsluna.
dkVerslunareining
Skref 1: Tengdu Teya aðganginn þinn
- Undir Sölureikningar smelltu á Verslunareining.
- Farðu síðan í Kassar.
- Smelltu á réttan Kassa.
- Opnaðu POS stillingar.
- Veldu Integated, Teya undir Tegund Posa.
- Smelltu á Authenticate hnappinn.
- Skannaðu QR kóðan með símanum þínum.
- Skráðu þig inn með Teya ID (Teya auðkenninu þínu) og staðfestu kóðann sem kemur upp í símanum.
- Þú munt fá staðfestingu að auðkenningin tókst.
Skref 2: Veldu verslun (e. Store)
Smelltu á Get available stores og finndu rétta verslun.
Skref 3: Veldu posa
Smelltu á Get available terminals og finndu posann sem þú vilt tengja við dkVerslunareining.
Þegar allt er valið þarf að vista með því að smella á save your settings - F12 Skrá.
dkIPOS/POS app
Skref 1: Sæktu dkPOS appið úr App Store
Skref 2: Auðkenndu þig með dk innskráningarupplýsingum
Þú færð þessar upplýsingar frá dk.
Skref 3: Tengdu Teya aðganginn þinn
- Smelltu á línurnar þrjár í vinstra horninu og opnaðu Settings.
- Undir Terminal Type veldu Teya Pos Link og smelltu á Setup.
- Í valmyndinni skaltu staðfesta auðkenni með Teya ID annaðhvort með því að skanna QR kóðann með símanum þínum eða opna hlekkinn fyrir neðan QR-kóðann í vafra á spjaldtölvunni.
- Eftir að auðkenningunni hefur verið lokið ætti rauði punkturinn að verða grænn og textinn Authenticated að birtast. Þá ættirðu að geta valið samning og viðeigandi posa úr listanum.