Greinar um þetta efni

Bæta við eða uppfæra bankareikning

Ef þú vilt bæta við nýjum bankareikningi eða uppfæra þann sem er skráður fyrir uppgjörum getur þú haft samband við þjónustuver Teya og við aðstoðum þig við að ganga frá breytingunni.

Þú nærð í okkur í gegnum netspjallið, í tölvupósti á hjalp@teya.is eða í síma 560 1600.

Upplýsingarnar sem við þurfum

Ef þú sendir okkur tölvupóst er mikilvægt að hann komi frá skráðu netfangi hjá okkur og innihaldi eftirfarandi upplýsingar:

  • Kennitölu rekstursins
  • Reikningsnúmer (ekki þarf að senda IBAN).
  • Upplýsingar um hvaða samning eða samninga á að tengja við reikninginn.

Ertu með fleiri en einn samning?

Ef þú ert með fleiri en einn samninga hjá Teya (t.d. bæði posasamning og netgreiðslusamning) getur þú ráðið því hvernig uppgjörum er beint:

  • Þú getur tengt sama bankareikninginn við einn eða fleiri samninga.
  • Þú getur líka verið með sér bankareikning fyrir hvern samning (t.d. einn fyrir netverslunina og annan fyrir posann). 

Hafðu þó í huga að hver samningur getur aðeins verið tengdur einum bankareikningi í einu. 

Skilyrði fyrir bankareikningi

  • Bankareikningurinn þarf að vera skráður á sömu kennitölu og samningurinn hjá Teya.
  • Bankareikningurinn þarf að vera í sama landi og gjaldmiðli og samningurinn hjá Teya. 

Hvenær tekur breytingin gildi?

  • Breyting tekur gildi næsta virka dag
  • Uppgjör sem eru þegar í vinnslu þegar breytingin er gerð greiðast inn á gamla reikninginn.

Ertu að færa reksturinn yfir á nýja kennitölu?

Ef reksturinn er að færast yfir á nýja kennitölu (t.d. ef farið er úr einstaklingskennitölu yfir á fyrirtækjakennitölu) nægir ekki að uppfæra bankareikninginn. Þá þarf að gera nýjan samning á nýju kennitölunni. Hafðu samband við þjónustuverið okkar og við leiðbeinum þér í gegnum það ferli.

 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Erum þér innan handar

  • Hafðu samband

    Þjónustufulltrúar okkar eru alltaf tilbúnir að aðstoða þig. Fáðu skjót svör í rauntíma og prófaðu að spjalla við gervigreind Teya.

  • Sendu okkur tölvupóst hvenær sem er

    Ertu með spurningar eða vantar aðstoð? Sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og auðið er!