Greinar um þetta efni

Breyta um lykilorð

Notaðu þessa grein til að breyta eða endurstilla lykilorðið þitt fyrir Teya ID (Auðkenni).

Þú getur skráð þig inn með þínu Teya ID (auðkenni) á alla þjónustuvefi Teya. Þetta þýðir að þú munt geta notað sama netfang til að skrá þig inn á Teya appið og þjónustuvef Teya. Teya ID er búið til með netfangi og símanúmeri, einungis hægt að tengja eitt netfang við eitt símanúmer. 

Endurstilla lykilorð

Fylgdu þessum skrefum ef þú veist ekki núverandi lykilorð:

  • Farðu á innskráningarsíðuna (Þjónustvef Teya eða Teya App)
  • Settu inn netfangið þitt sem tengt er Teya ID og áfram.
  • Smelltu á Gleymt lykilorð.
  • Athugaðu pósthólfið þitt – Það ætti að vera póstur frá Teya til að endurstilla lykilorð.
  • Smelltu á hlekkinn í póstinum til að útbúa nýtt lykilorð.

Notaðu nýja lykilorðið næst þegar þú skráir þig inn næst. 

Bilanagreining endurstilla lykilorð

Ég fékk engan póst 

Ef pósturinn er ekki í aðal pósthólfinu þínu:

  • Athugaðu netfangið
    Gakktu úr skugga um að þú hafir slegið inn rétt netfang sem er skráð á Teya auðkenninu þínu (Teya ID). Athugaðu hvort stafsetningarvillur séu til staðar.
  • Athugaðu önnur hólf
    Athugaðu í rusl hólfin.
  • Bíddu í nokkrar mínútur
    Sumir póstveitendur (eins og Gmail) geta tekið allt að 10 mínútur að skila sjálfvirkum tölvupóstum.
  • Athugaðu hópaða (bundled) tölvupósta
    Ef þú baðst um marga tölvupósta getur Gmail hópað þá saman í einn þráð. Opnaðu þráðinn (þrír punktar neðst í síðasta tölvupóstinum) og leitaðu að nýjasta skilaboðinu.

Hlekkurinn til að endurstilla er útrunninn

Hlekkir til að endurstilla lykilorð eru aðeins virkir í skamman tíma af öryggisástæðum. Ef þú færð skilaboð um að hlekkurinn sé útrunninn:

  1. Farðu aftur á innskáningarsíðuna.
  2. Sláðu inn netfangið þitt aftur og biddu um nýjan tölvupóst til að endurstilla.
  3. Opnaðu nýja tölvupóstinn um leið og hann berst og smelltu á hlekkinn.

Aðgangurinn þinn hefur verið læstur eftir of margar tilraunir

Ef þú slærð inn rangt lykilorð nokkrum sinnum í röð læsist Teya aðgangurinn þinn tímabundið. 

  • Hægt að :
    • Smella á Gleymt lykilorð? til að endurstilla lykilorðið, eða
    • Bíða í 30 mínútur eftir að læsingu ljúki og reyndu svo aftur með réttum upplýsingum.

 

Var þessi grein gagnleg?
5 af 6 fannst þessi grein gagnleg

Erum þér innan handar

  • Hafðu samband

    Þjónustufulltrúar okkar eru alltaf tilbúnir að aðstoða þig. Fáðu skjót svör í rauntíma og prófaðu að spjalla við gervigreind Teya.

  • Sendu okkur tölvupóst hvenær sem er

    Ertu með spurningar eða vantar aðstoð? Sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og auðið er!