Greinar um þetta efni

Afhending og skil posa

Þessi grein fer yfir hvernig afhending posa fer fram og hverju þú mátt búast við þegar pöntunin þín hefur verið staðfest.

Afhendingartímar

Við stefnum að því að afhenda posann innan tveggja virkra daga og því mikilvægt að panta með góðum fyrirvara.

  • Afhendingartími: 24–48 klukkustundir frá því að beiðni um posa er send til okkar.
  • Helgar: Við sendum ekki um helgar. 

Vinsamlegast athugið að möguleg töf getur átt sér stað vegna hátíðardaga eða veðurfars.

Fylgjast með sendingu

Dropp

Posarnir eru sendir með Dropp. Þú munt fá skilaboð frá Dropp með sendingarnúmeri/strikamerki sem þú getur notað til að finna sendinguna á heimasíðu Dropp. Þú færð síðan SMS þegar sendingin er komin á afhendingarstað.

Þegar sendingin er komin til Dropp þá er það á þeim komið. Taka þarf tillit til mögulegrar seinkunar á vegum Dropp sem gæti átt sér stað vegna ófyrirséðna aðstæðna. 

Ef upp koma vandamál með sendingaraðila þá er þjónustuver Teya alltaf innan handar.

Skila posa

Þú getur skilað posanum til okkar í Katrínartún 4, 2.hæð. Það er opið hjá okkur frá 9 til 4 alla virka daga. 

Einnig hægt að endursenda posa til baka með Dropp.

 

Var þessi grein gagnleg?
2 af 2 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig

  • Hafðu samband

    Fáðu skjót svör í rauntíma frá stuðningsteyminu okkar ef þú hefur brýnar spurningar eða þarft leiðbeiningar.

  • Sendu okkur tölvupóst hvenær sem er

    Ertu með spurningar eða vantar aðstoð? Sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og auðið er!