Greinar um þetta efni

Auka posi

Ef þú þarft fleiri posa þá er hægt að bæta við eins mörgum posum og þarf á samninginn þinn. Þessi grein útskýrir hvernig biðja skal um auka posa, hverju má búast við með verð og afhendingu.   

Hvernig óska ég eftir auka posa?

Ef þú vilt panta auka posa er teymið okkar fljótt að bregðast við!
Sendu okkur tölvupóst, byrjaðu netspjall eða hringdu í síma 560 1600 og gefðu okkur eftirfarandi upplýsingar:
  1. Hversu marga posa má bjóða þér og hvernig? (Hér má sjá úrvalið)
  2. Hver mun sjá um að sækja pöntun og hvert er símanúmerið og netfangið hjá þeim aðila?
  3. Er um að ræða skammtíma- eða langtímaleigu?
  4. Ert þú að tengja posann við kassakerfi? 
  5. Hvort vilt þú sækja posann í móttökuna okkar í Katrínartúni 4, 2. hæð eða fá sent með Dropp?

*Þurfum einnig að vita á hvaða kennitölu og samningi posinn á að tengjast.

Verð

Posarnir okkar eru allir á sama verði. Hér er hægt að sjá verðskrá Teya.

Greiðslur og afhendingartími

Þegar pöntun hefur verið móttekin mun Þjónustuver okkar senda staðfestingu á pöntuninni á netfang prókúruhafa.
Áætlaðir afhendingartímar:
  • Sækja í Katrínartún 4, 2. hæð: Samdægurs
  • Ef þú pantar fyrir 11:50 á virkum degi: Afhending á höfuðborgarsvæðinu um kl 17:00 sama dag. Suðvesturhornið um kl 20:00 sama dag. Landsbyggðin, fer eftir hvar en miða má við næsta virka dag (Akureyri, Egilsstaðir). 1-2 virka daga aðrir staðir. 2-3 virka daga (Hólmavík, Þórshöfn, Raufarhöfn og Vopnafjörður).

Fylgjast með sendingu

Dropp mun senda þér SMS þegar pöntunin er í undirbúningi og síðan þegar pöntunin er mætt á afhendingarstað.
  • Í SMS-inu er er QR kóði sem þú sýnir starfsmanni á afhendingarstaðnum. 

*Við bendum á að tilfallandi breytingar geta orðið á afhendingartímum ef Dropp seinkar í afhendingu eða ef veður hafa áhrif á akstur. 

Var þessi grein gagnleg?
2 af 2 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig