Þessi grein fer yfir hvernig afhending posa fer fram og hverju þú mátt búast við þegar pöntunin þín hefur verið staðfest.
Afhendingartímar
Við stefnum að því að afhenda posann innan tveggja virkra daga og því mikilvægt að panta með góðum fyrirvara.
- Afhendingartími: 24–48 klukkustundir frá því að beiðni um posa er send til okkar.
- Helgar: Við sendum ekki um helgar.
Vinsamlegast athugið að möguleg töf getur átt sér stað vegna hátíðardaga eða veðurfars.
Fylgjast með sendingu
Dropp
Posarnir eru sendir með Dropp. Þú munt fá skilaboð frá Dropp með sendingarnúmeri/strikamerki sem þú getur notað til að finna sendinguna á heimasíðu Dropp. Þú færð síðan SMS þegar sendingin er komin á afhendingarstað.
Þegar sendingin er komin til Dropp þá er það á þeim komið. Taka þarf tillit til mögulegrar seinkunar á vegum Dropp sem gæti átt sér stað vegna ófyrirséðna aðstæðna.
Ef upp koma vandamál með sendingaraðila þá er viðskiptaver Teya alltaf innan handar.