Tap to Pay er einföld og þægileg leið til að taka við greiðslum. Í gegnum Teya appið breytist síminn þinn (iPhone eða Android) í öruggan posa sem tekur við snertilausum greiðslum frá greiðslukortum, Apple Pay, Google Pay og öðrum stafrænum veskjum - allt án þess að þurfa nokkuð annað.
Tæki sem styðja Tap to Pay á iPhone
- iPhone XS eða nýrri tæki.
iOS 18.6 eða nýrri útgáfa
Stöðug nettenging (Wi-Fi eða 4G farsímanet nauðsynlegt fyrir allar færslur).
- Tækið þarf að vera með aðgangskóða, Teya ID, Touch ID.
- Android 12 eða nýrri útgáfa.
- NFC tæknin (Near Field Communication) virk. Ef Google Wallet eða Google Pay virkar í símanum þínum þá er tækið líklega NFC virkt.
Stöðug nettenging (Wi-Fi eða 4G farsímanet nauðsynlegt fyrir allar færslur).
- Tækið þarf að vera með Android Enable Android skjálás.
Undirbúðu tækið þitt
Áður en þú byrjar að selja, gakktu úr skugga um að síminn þinn sé tilbúinn að taka við færslum.
- Öryggi: Virkjaðu lykilorð, Face ID, Touch ID, eða Android skjálás.
- Dagsetning og tími: Stilltu símann þinn svo hann uppfæri dagsetningu og tíma skjálfkrafa.
- Staða tækis: Gakktu úr skugga um að síminn þinn sé ekki í forritaraham.
- Hindranir: Ef síminn þinn er í hulstri sem geymir kortin þín þá skaltu fjarlæga þau. Það gæti gerst að greiðsla verði óvart tekin af þínu korti.
- Virkja: Athugaðu hvort Tap to Pay er sett upp í Teya appinu þínu og virkt.
*Vinsamlegast hafðu samband við Þjónustuver ef Tay to Pay valkosturinn kemur ekki upp í símanum þínum - við aðstoðum þig.
Hvernig tek ég við greiðslum?
Fylgdu þessum skrefum til að taka við snertilausum greiðslum beint á iPhone eða Android með Teya appinu:
- Opnaðu Teya appið og síðan Selja.
- Veldu Tap to Pay á iPhone eða Tap to Pay á Android.
- Sláðu inn upphæðina og Greiða.
Beindu símanum að viðskiptavininum.
- Leiðbeindu viðskiptavini þínum að:
- Halda greiðslukortinu yfir efsta hluta símans eða;
- Halda símanum sínum, eða öðru rafrænu veski (t.d. Apple Pay, Google Pay, Samsung Pay), yfir efsta hluta símans
Þegar greiðslu er lokið munt þú:
- Heyra staðfestingarhljóð og finna titring
Sjá blátt staðfestingartákn og skilaboðin Greiðsla samþykkt á skjánum.
Fá valkost til að senda rafræna kvittun
Athugið: Greiðslu er lokið þegar þú sérð skilaboðin Greiðsla samþykkt. Viltu fá rafræna kvittun? Til að staðfesta hvort færslan hafi farið í gegn, opnaðu Færslur skjáinn í Teya appinu.
Áreiðanlegar greiðslur með Tap to Pay
- Rafhlöðustaða: Best að hafa símann yfir 20%.
- Uppfærslur: Mikilvægt að hafa símann í nýjustu uppfærslunni og hafa Teya appið í nýjustu útgáfunni.
- Kvittanir: Alltaf bjóða viðskiptavin að fá rafræna kvittun með pósti eða SMS.
Bilanagreining
Algengar ástæður þess að það koma upp vandamál að taka við greiðslu:
Korti hafnað
- Ef greiðslu er hafnað mun Tap to Pay skjárinn birta skilaboðin Greiðslu hafnað og ástæðu villunnar. Þú getur prófað aftur til að sjá hvort vandamálið sé hjá viðskiptavininum.
- Ef greiðslu er hafnað oftar en einu sinni geturðu bent viðskiptavininum á að prófa annan greiðslumáta.
Netvilla
- Líkt og öll önnur posatæki krefst Tap to Pay virkrar nettengingar til að taka við greiðslum. Þetta getur verið annað hvort Wi-Fi tenging eða 4G/5G.
Staðsetning fannst ekki
- Tap to Pay á Android krefst þess að staðsetning sé virkjuð til að vinna úr kortagreiðslum. Ef staðsetning er ekki virkjuð geta greiðslur mistekist.
- Til að athuga hvort staðsetning sé virk fyrir Tap to Pay skaltu fara í stillingar símans og kveikja á henni.
- Ef villan heldur áfram getur þú prófað að slökkva og kveikja aftur á staðsetningunni.
Ef appið virkar ekki eins og það á að gera getur þú fundið lausnir hér:
Lagaðu vandamál með farsímann þinn
- Farðu í stillingar í símanum og athugaðu hvort síminn keyri á nýjustu útgáfu stýrikerfisins;
- Gakktu úr skugga um að síminn sé tengdur við internetið, annaðhvort í gegnum Wi-Fi eða farsímagögn (4G/5G);
- Gakktu úr skugga um að nauðsynlegar stillingar séu virkjaðar fyrir Tap to Pay.
- Vertu viss um að forritunarstilling (Developer mode) sé ekki virk.
Uppfærðu appið
- Opnaðu Google Play eða Apple Store og leitaðu að Teya appinu;
- Athugaðu hvort það standi Uppfæra hjá appinu - ef svo er, smelltu á það.
Neyða appið til að hætta
- Skráðu þig út og aftur inn í appið;
- Neyða appið til að hætta - farðu í Stillingar > Forrit > Stjórna Forritum á Android og leitaðu að Teya appinu;
- Eyða og setja appið upp aftur;
- Slökkva á símanum og kveikja á honum aftur;
- Gakktu úr skugga um að dagsetning og tími á tækinu séu rétt stillt.