Greinar um þetta efni

Stjórna aðgangi að Tap to Pay fyrir notendur

Þú getur gert starfsfólki þínu kleift að taka við greiðslum í eigin símum með Tap to Pay. Með því að gefa þeim starfsmanna aðgang að Teya appinu geta þau tekið við greiðslum samstundis án þess að fá aðgang að viðkvæmum viðskiptagögnum þínum eða uppgjörum.

Áður en þú byrjar

Gakktu úr skugga um að : 

  • Þú sért inni á aðgangnum sem prókúruhafi (eigandi), stjórnandi eða yfirmaður með heimild til að stjórna notendum.
  • Þú hefur sett upp Tap to pay í síma hjá prókúruhafa eða stjórnenda og samþykkt notkun Tap to pay. 

Hvernig bæti ég við notenda

Fylgdu þessum skrefum til að senda boð til starfsmanns:

Í Teya appinu

  1. Opnaðu Teya appið og ýttu á nafn fyrirtækisins efst á skjánum til að opna hliðarvalmyndina.
  2. Farðu í Stillingar.
  3. Veldu Teymi og heimildir.
  4. Smelltu á + Bæta við notanda efst í hægra horninu og sláðu inn nafn og netfang viðkomandi.
  5. Smelltu á Halda áfram.
  6. Veldu hlutverk og farðu yfir heimildir fyrir hvern hluta.
  7. Smelltu á Senda boð.
  8. Notandinn mun fá tölvupóst til að ljúka við að setja upp aðganginn sinn og Teya auðkenni.

Á þjónustuvefnum

  1. Farðu inn á þjónustuvefinn og skráðu þig inn með innskráningarupplýsingunum þínum.
  2. Veldu Teymi og heimildir í vinstri valmyndinni.
  3. Smelltu á + Bæta við meðlim og fylltu inn í nauðsynlega reiti (nafn, netfang og hlutverk).
  4. Smelltu á Senda boð.
  5. Notandinn fær tölvupóst til að ljúka við skráninguna og stofna Teya auðkenni.

Þú getur nálgast frekari upplýsingar um teymi og heimildir hér.

Var þessi grein gagnleg?
2 af 3 fannst þessi grein gagnleg

Erum þér innan handar

  • Hafðu samband

    Þjónustufulltrúar okkar eru alltaf tilbúnir að aðstoða þig. Fáðu skjót svör í rauntíma og prófaðu að spjalla við gervigreind Teya.

  • Sendu okkur tölvupóst hvenær sem er

    Ertu með spurningar eða vantar aðstoð? Sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og auðið er!