Notaðu posann þinn, Þjónustuvef Teya eða Teya appið til að fylgjast með stöðu Greiðslubeiðna sem þú hefur sent til viðskiptavina.
Posi
- Opnaðu Valmynd á posanum þínum.
- Smelltu á Greiðslubeiðnir.
- Notaðu Síur til að finna greiðslubeiðnina, hægt er að leita eftir heimildarnúmeri, dagsetningu, upphæð, posa, stöðu færslu eða tegund færslu.
- Smelltu á færsluna til að fá upplýsingar um færsluna og stöðu greiðslubeiðnar.
Teya appið
- Opnaðu Teya appið í símanum þínum.
- Smelltu á Meira og undir Sala eru Greiðslubeiðnir.
- Notaðu Síur til að finna greiðslubeiðnina, hægt er að leita eftir netfangi, símanúmeri eða upphæð.
- Smelltu á færsluna til að fá upplýsingar um færsluna og stöðu greiðslubeiðnar.
Þjónustuvefur Teya
- Skráðu þig inn á Þjónustuvef Teya.
- Smelltu á Sala vinstra megin á síðunni.
- Veldu Greiðslubeiðnir undir Sala.
- Notaðu Síur til að finna greiðslubeiðnina, hægt er að leita eftir netfangi, símanúmeri, stöðu tengils og greiðslustöðu.
- Smelltu á færsluna til að fá upplýsingar um færsluna og stöðu greiðslubeiðnar.
Staða greiðslubeiðni
Hér fyrir neðan er farið yfir mismunandi stöður á greiðslubeiðnum og hvað hver staða þýðir.
| Samþykkt | Viðskiptavinur hefur greitt greiðslubeiðnina. Greiðslan mun koma á næsta uppgjöri. |
| Virkur | Beiðnin hefur verið stofnuð og er enn virk, en viðskiptavinur á eftir að greiða |
| Virkur og í vinnslu | Viðskiptavinurinn hefur opnað beiðnina en ekki lokið tveggja þátta auðkenni (3D Secure), svo greiðslunni er ekki lokið. Gætir þurft að senda aðra greiðslubeiðni ef þau klára ekki þetta skref. |
| Útrunnin | Viðskiptavinurinn greiddi ekki greiðslubeiðnina og tengillinn er útrunninn. Það þarf að búa til nýja greiðslubeiðni og senda aftur á viðskiptavin. |