Greiðslusíða Teya býður upp á öruggt og einfalt greiðsluferli. Við sjáum um öryggið, reglufylgnina og samþykktarferlið svo þú getir einbeitt þér að daglegum rekstri. Auðvelt er að tengja greiðslusíðuna við Shopify eða WooCommerce á örfáum mínútum. Þessi grein útskýrir hvaða eiginleika standa þér til boða og hvernig þú virkjar netgreiðslur fyrir reksturinn þinn.
Netgreiðslur í boði
- Viðbót (Plugin): Tengdu greiðslusíðu Teya beint við Shopify eða WooCommerce síðuna þína.
- Greiðslubeiðni: Stofnaðu Greiðslubeiðnir í posa, appi eða á þjónustuvef og sendu á viðskiptavini með tölvupósti eða SMS. Greiðslubeiðni er sambærileg lausn og símgreiðsla, nema öruggari fyrir bæði korthafa og seljenda þar sem sterk auðkenning fer fram.
- Greiðslusíða: Örugg veflausn sem styður Apple Pay, Google Pay og auðkenningu (3DS).
- Sameinuð yfirsýn: Fylgstu með allri sölu í rauntíma á þjónustuvef okkar eða í Teya appinu.
Viðbót í boði
Viðbót (Plugin)
Ef þú ert með Shopify eða WooCommerce vefsíðu þá getur þú tekið við færslum beint í gegnum Teya.
- Viðskiptavinur verslar á vefsíðunni þinni og þegar hann er tilbúinn að klára pöntunina er hann fluttur yfir á örugga greiðslusíðu Teya til að klára greiðslu.
- Teya vinnur úr greiðslunni á öruggan hátt og að lokinni greiðslu er viðskiptavinurinn sendur aftur á vefsíðuna þína.
Greiðslubeiðnir
Þú þarft ekki vefsíðu til að taka til greiðslum, hægt er að nota greiðslubeiðnir.
- Útbúðu hlekk til að senda á viðskiptavin í gegnum posann þinn, þjónustuvef Teya eða Teya appið.
- Viðskiptavinur fær hlekk í tölvupósti eða SMS og færist yfir á örugga greiðslusíðu. Hægt er að fylgjast með stöðu greiðslubeiðnar í posanum þínum, á þjónustuvef Teya og Teya appinu.