Greinar um þetta efni

Greiðslusíða (Hosted Checkout)

Greiðslusíða Teya býður upp á öruggt og einfalt greiðsluferli. Við sjáum um öryggið, reglufylgnina og samþykktarferlið svo þú getir einbeitt þér að daglegum rekstri.

Af hverju að notað Greiðslusíðu Teya

Með því að nota greiðslusíðu Teya einfaldar þú uppsetningu og bætir öryggi.

  • Einfaldari reglufylgni: Teya sér alfarið um kortaupplýsingar og öryggiskröfur.
  • Öruggar greiðslur: Innbyggð auðkenning (3DS) bætir við öryggi bæði fyrir þig og viðskiptavinina þína.
  • Stafrænt veski: Viðskiptavinir geta borgað hratt og örugglega með Apple Pay og Google Wallet, auk hefðbundinna greiðslukorta.

Greiðsluferlið virkar svona

  1. Ganga frá kaupum: Þegar viðskiptavinur er búin að setja vörur í körfu smellir hann á að ganga frá kaupum sem dæmi.
  2. Vísað áfram:  Viðskiptavinur er fluttur yfir á örugga greiðslusíðu Teya.
  3. Greiðsla: Viðskiptavinur skráir inn kortaupplýsingar eða notar rafrænt veski (Apple Pay/Google wallet).
  4. Öryggisskoðun: Teya keyrir auðkenningu/3D Secure (staðfestir með bankanum) til að leyfa greiðsluna.
  5. Staðfesting: Þegar pöntunin hefur verið samþykkt er viðskiptavinurinn sendur á vefsíðuna þína þar sem staðfest er pöntun.

Viðurkenndir greiðslumátar

Greiðslusíða styður öll helstu kort og stafræn veski:

  • Visa
  • Mastercard
  • American Express
  • Apple Pay (á Apple vörum)
  • Google Wallet

Sérsníða greiðslusíðu

Þú getur stillt útlit og notkun greiðslusíðunnar til að passa við þarfir fyrirtækisins með tengingunni:

  • Birta upplýsingar: Veldu hvort sýna eigi vörulista, nafn verslunar og heildarupphæð pöntunar.
  • Gögn viðskiptavina: Veldu hvaða upplýsingar á að safna (t.d. nafn korthafa, netfang, símanúmer).
  • Áframsending: Ákveddu hvort viðskiptavinir fái skilaboð um að greiðsla hafi tekist hjá Teya eða að þau séu strax send aftur á vefverslunina þína.

Hvernig á ég að byrja?

Greiðslusíða krefst þess að Teya sé tengd við vefsíðuna þína.

  • Fyrir forritara: Vinsamlegast skoðið leiðbeiningar um tengingu í skjölum okkar fyrir forritara.
  • Fyrir meðlimi: Ef þú ert að nota viðbót (eins og WooCommerce eða Shopify) eða þarft aðstoð við að tengja við Teya viðbótina, vinsamlegast hafðu samband við þjónustuverið okkar til að fá aðstoð.
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig