Með því að samþætta Teya beint við vefsíðu eða app geturðu tekið við netgreiðslum á öruggan og sveigjanlegan hátt. Þessi grein aðstoðar þig og forritarann þinn við að velja rétta uppsetningu, sækja API-lykla og prófa kerfið fyrir útgáfu.
Veldu samþættingarleið
Teya býður upp á tvær meginleiðir fyrir sérsniðnar tengingar:
Hosted Checkout greiðslusíða Vefsíðan býr til greiðslulotu (session) í gegnum Teya API. Þegar viðskiptavinur er tilbúinn að greiða er honum vísað yfir á örugga greiðslusíðu Teya og að greiðslu lokinni aftur á þína síðu.
- Hvenær á að velja þetta: Fljótlegasta leiðin í þróun og krefst lágmarks viðhalds. Besti og sjálfgefni valkosturinn fyrir flestar samþættingar.
Sérsníðin greiðslusíða Greiðslureitir Teya eru felldir beint inn á þína eigin greiðslusíðu. Viðskiptavinurinn fer aldrei af vefsíðunni þinni í gegnum allt ferlið.
- Hvenær á að velja þetta: Þegar lykilatriði er að halda viðskiptavininum allan tímann á þinni eigin síðu og þú vilt fulla stjórn á útliti. Krefst meiri forritunarvinnu og tæknilegrar getu.
Hvernig fæ ég API-lykla og set upp vefkrækjur?
Til að tengjast API endapunktunum okkar þarftu að búa til auðkenni og til að taka við stöðuuppfærslum um greiðslur í rauntíma þarftu að setja upp vefkrækjur.
Þú getur auðveldlega stillt bæði með því að nota þjónustuvef Teya. Sama nálgun gildir fyrir prófunarumhverfi.
Fylgdu þessum skrefum:
- Opnaðu þjónustuvef Teya.
- Smelltu á nafn reksturs uppi í vinstra horninu.
- Farðu í Samþættingar.
- Veldu samnigninn sem þú vilt setja upp.
- Búðu til auðkenni og vefkrækjur.
Prófaðu og settu samþættinguna í loftið
Forritarinn þinn mun byggja og prófa samþættinguna fyrst í prófunarumhverfi.
Mikilvægt:Hafðu samband við þjónustuver ef þú þarft aðgang að prófunarumhverfi Teya.
Næstu skref fyrir prófun:
- Setja upp prófunarumhverfi: Teya starfsmaður mun setja upp prófunaraðgang fyrir þinn forritara.
- Keyra prófunarfærslur: Búið er til ný auðkenni (credentials) og setja upp vefkrækjur (webhook).
- Staðfesta ferlið: Prófaðu allt greiðsluferlið, endurgreiddu færslu og tryggðu að vefkrækjuferlið þitt virki rétt.
- Færa í raunumhverfi: Þegar þú hefur prófað öll ferli með góðum árangri geturðu fært samþættinguna þína í raunumhverfið og tekið við raunverulegum greiðslum.
Úrræði fyrir forritara: Fyrir samþættingar handbækur Teya, ákveðin skref, API tilvísanir og kóðadæmi, sendu forritarann þinn á Teya Developer Guide.