Endurkrafa er hluti af neytendavernd sem gerir korthöfum kleift að óska eftir endurgreiðslu í gegnum bankann sinn. Teya hefur ekki frumkvæði að endurkröfum og söluaðilar geta ekki komið í veg fyrir þær.
Af hverju fékk ég endurkröfu?
Korthafar gætu mótmælt greiðslu vegna þess að þeir kannast ekki við færsluna, fengu ekki vöruna eða þjónustuna eða halda því fram að færslan hafi verið óheimil.
Þegar korthafi hefur gert athugasemd fylgir krafan ákveðnu ferli:
- Banki korthafa sendir kröfuna til kortakerfisins (t.d. Visa, Mastercard eða AMEX).
- Kortakerfið sendir kröfuna til Teya.
- Við látum þig vita og gefum þér tækifæri til að svara og mótmæla endurkröfunni.
Hvernig fæ ég tilkynningu?
Þegar endurkrafa berst:
- er upphæðin sjálfkrafa dregin frá uppgjörinu þínu,
- færðu tölvupóst með upphæð, ástæðu, sönnunargögnum sem þú getur lagt fram til að mótmæla kröfunni og svarfresti.
Skoða og leita að endurkröfum á þjónustuvefnum
Skráðu þig inn á þjónustuvefinn og veldu Endurkröfur undir Sala. Þar geturðu skoðað stöðu krafna og leitað eftir:
- ARN númer: Leita eftir tilvísunarnúmeri.
- Tegund: Sía eftir tegund endurkröfu.
- Upphæð: Leita eftir nákvæmri upphæð færslunnar.
- Uppfærsla: Sía eftir nýlegum upplýsingum.
Fylgja endurkröfum einhver aukagjöld?
Já. Hverri endurkröfu fylgir óafturkræft endurkröfugjald að upphæð 3.000 kr., jafnvel., jafnvel þótt niðurstaðan verði þér í hag.
Hvernig mótmæli ég endurkröfu?
Ef þú telur endurkröfuna óréttmæta skaltu svara innan þess frests sem kemur fram í tölvupóstinum.
Gögn þurfa að uppfylla neðangreind skilyrði :
- Snið: Sendu skrár eingöngu í PDF eða JPEG sniði.
- Tungumál: Öll gögn verða að vera á ensku.
- Engir utanaðkomandi hlekkir: Ekki deila hlekkjum á Google Drive, SharePoint eða aðrar utanaðkomandi síður. Við getum ekki tekið við þeim.
Ef mótmælin þín eru samþykkt verður fjárhæðin endurgreidd inn á reikninginn þinn.
Hversu langan tíma hafa korthafar til að leggja fram endurkröfu?
Flestar endurkröfur má leggja fram innan 120 daga frá færsludegi. Fyrir ákveðnar atvinnugreinar getur fresturinn verið lengri. Hafðu samband við þjónustuver Teya ef þú þarft upplýsingar um tiltekna atvinnugrein.