Í þessum leiðbeiningum er farið yfir hvernig verðlagning Teya virkar og hvernig þjónustugjöld eru reiknuð. Nákvæmur kostnaður getur verið breytilegur eftir samningi, vörum og þjónustu, en yfirlitið hér að neðan hjálpar þér að skilja helstu gjöldin þín.
Gjöld Teya
Heildarkostnaðurinn samanstendur af:
- Þjónustugjald: Kostnaðurinn á því að taka við kortafærslum (útskýrt frekar neðar).
- Mánaðargjald: Föst gjöld fyrir mánaðarleigu á posa eða veflausn.
Kortafærslugjöld
Fast gjald (Blönduð þjónustugjöld)
Blönduð þjónustugjöld Teya fela í sér stakt verð sem einfalt er að skilja fyrir allar tegundir kortafærslna, og er því auðvelt að bera saman kostnað og áætla framtíðarkostnað vegna móttöku kortafærslna.
Blönduð þjónustugjöld flétta saman kostnaði við að færsluhirða kortafærslur í eitt meðalverð. Meðalverðið er reiknað með því að deila heildarkostnaði sem felst í færsluhirðingu kortafærslna með heildarfjölda kortafærslna.
Blönduð þjónustugjöld Teya innihalda því öll gjöld og kostnað sem lagt er á kortafærslur af hálfu kortaútgefenda, kortakerfa og færsluhirðis, þ.e. Teya. Það þýðir að fast verð á við þegar þú tekur við kortagreiðslum óháð mismunandi flokkum, vörumerkjum og útgáfulöndum greiðslukorta, svo dæmi sé nefnt. Með blönduðum þjónustugjöldum okkar ertu þar af leiðandi ávallt fullviss um hvað þú greiðir vegna hverrar kortagreiðslu.
Ef kostnaður við færsluhirðingu kortagreiðslu er hærri en þitt fasta verð fellur mismunurinn á Teya.
Interchange (IC++)
Með millikortagjalda++ gjaldasettinu er fullt gagnsæi á þá gjaldaliði sem fylgja færslunum þínum svo þú getur fullvissað þig um hvert þín gjöld eru að fara. Í gegnum þá verðskrá er gjaldaliðum á uppgjörsyfirliti skipt niður í þrjá flokka: millikortagjöld(IC), gjöld kortafélaga(+) og þóknun Teya(+).
Þjónustugjöld samanstanda af þremur aðskildum liðum:
- Millikortagjöld: Fara til útgáfubanka kortsins. Annað heiti yfir þessi gjöld er gjald útgáfubanka. Þetta gjald er að jafnaði 0.20% - 1.80% fyrir hverja færslu.
- Gjöld kortafélaga: Fer til dæmis til Visa og Mastercard. Þetta gjald getur verið breytilegt eftir staðsetningu, öryggisstigi færslunnar eða gerð korta. Þetta gjald er að jafnaði 0.02% - 0.65% fyrir hverja færslu.
- Gjöld færsluhirða: Fast gjald sem er rukkað fyrir færsluhirðinguna. Þetta gjald inniheldur kostnaðinn á bak við úrvinnslu færslna og er þetta fast gjald sem Teya rukkar.
Hvað eru þjónustugjöld?
- Útgefandi: Bankinn sem gefur út kort viðskiptavinar.
- Kortafélag: Kortafélagið sem að kortið tilheyrir, t.d. Visa eða Mastercard.
- Færsluhirðir: Stofnunin sem sér um vinnslu kortafærslna fyrir fyrirtækið þitt.
Dæmi, ef færslugjald er 1,00% af 1.000 kr. sölu, gæti skiptingin litið svona út:
- ~0.60% fer til útgefanda (millikortagjöld).
- ~0.10% fer til kortafélags.
- ~0.30% fer til Teya.
Athugið: Nákvæm skipting fer eftir því sem samið var um við stofnun samning og hvaða kort er notað.
Skoðaðu þjónustugjöldin þín
Þú getur skoðað núverandi verðlagninguna þína og þjónustugjöld í Teya appinu og á þjónustuvefnum.
Teya appið
- Opnaðu Teya appið og smelltu á nafn fyrirtækisins efst á skjánum til að opna hliðarvalmyndina.
- Smelltu á Verðlagning.
Hér sérðu vörurnar sem eru innifaldar í áskriftinni þinni fyrir hvern samning, þar á meðal posana og sundurliðun kortagjalda.
- Farðu inn á þjónustuvefinn og skráðu þig inn með Teya aðgangi þínum.
- Veldu Verðlagning og vörur í vinstri valmyndinni.
Á þessari síðu sérðu verðlagninguna og þjónustugjöldin þín.
Mánaðargjöld á vöru
Greiðslutímabilið þitt hefst á öðrum virka degi hvers mánaðar. Skoðaðu kaflana hér að neðan til að sjá hvernig gjöld eiga við um þínar tilteknu vörur.
Posaleiga
Mánaðarleiga: Fyrsta greiðslan á sér stað fyrsta virka dag hvers mánaðar.
- Þú greiðir fyrirfram.
- Engin mánaðarleg leigugjöld eru innheimt á umsömdu tímabili.
Veflausnir
Mánaðargjald: Ef þú ert að nota Teya veflausn til þess að taka á móti færslum greiðir þú mánaðargjald. Í hverjum mánuði færðu sendan reikning vegna mánaðargjalds.
Sveigjanlegur samningur
Samningur þinn við Teya er ekki bundinn og býður því upp á sveigjanleika.