Þessi grein útskýrir þau gjöld sem þú greiðir, hvenær og hvernig Teya innheimtir þau og hvernig þú getur nálgast reikninga.
Gjöld á samningnum þínum
Við skiptum gjöldum upp í tvo meginhluta: færslugjöld og mánaðargjöld.
1. Færslugjöld (Þóknun)
Þjónustugjöld Teya, eða þóknun, geta verið mismunandi eftir þeim vörum og þjónustu sem fyrirtækið þitt notar sem og landinu þar sem fyrirtækið þitt starfar. Samningur þinn við Teya er ekki bundinn og býður því upp á sveigjanleika. Þessi gjöld eru tekin af hverri kortagreiðslu sem fer í gegn hjá Teya.
- Innheimta: Við drögum færslugjöld sjálfkrafa frá daglegum uppgjörum þínum.
- Reikningar: Við sendum ekki út mánaðarlegan reikning fyrir þessi gjöld.
- Hvar finn ég þetta: Þú sérð þessi gjöld í daglegu og mánaðarlegu uppgjörsskýrslunum þínum.
2. Mánaðargjöld
Þetta er fastur kostnaður fyrir þá greiðslulausn sem þú notar hjá Teya og eru reikningar sendir vegna þessa.
- Fyrir posa: Það sem þú greiðir í byrjun mánaðar fyrir posaleigu.
- Fyrir veflausn: Mánaðargjald fyrir veflausn eins og greiðslusíðu eða greiðslugátt frá Teya.
Hvenær og hvernig við innheimtum greiðslur
Við innheimtum mánaðargreiðslur í byrjun hvers mánaðar fyrir næsta mánuð, eða á þeim mánaðardegi sem þú komst í viðskipti.
Frádráttur vegna uppgjörs
Við drögum sjálfkrafa mánaðarleigu gjald fyrir posaleigu eða veflausn frá uppgjörum þínum. Í hverjum mánuði færðu sendan reikning vegna mánaðargjalds.
Neikvæð staða á samning
Samningur getur farið í neikvæða stöðu ef að heildarfrádráttur frá gjöldum, endurkröfum eða endurgreiðslum er hærri en heildarupphæð veltu. Þegar samningur er í neikvæðri stöðu færð þú ekki greitt uppgjör fyrr en:
- Veltan er hærri en frádráttur og;
- Þegar uppgjör fer yfir lágmarksupphæð uppgjörs eða það sem samsvarar 15 evrum.
Ef að samningur fer í neikvæða stöðu gætu komið ýmsar takmarkanir á samninginn svo sem takmarkanir á endurgreiðslum.
Fá reikninga senda á netfang
Við sendum reikninga sem PDF viðhengi á skráða netfangið á Teya aðganginum þínum.
-
Ef um er að ræða margar greiðslur samtímis þá er vanalega hópað saman PDF skjölin í einn póst daginn eftir.
Athugið: Ef þú finnur ekki reikning í pósthólfinu þínu, leitaðu af "Teya reikningur" og athugaðu rusl pósthólfið. Einnig er hægt að nálgast alla reikninga inn þjónustuvef Teya og Teya appinu.
Sækja reikning í gegnum þjónustuvef Teya
Hægt er að skoða og hlaða niður öllum reikningunum á þjónustuvef Teya.
- Skráðu þig inn á þjónustuvef Teya.
- Smelltu á Uppgjör.
- Veldu hvaða reikning þú vilt skoða eða hlaða niður.
Sækja með Teya appinu
Hægt er að skoða og hlaða niður öllum reikningunum með Teya appinu.
- Opnaðu appið og smelltu á Meira.
- Undir Stillingar veldu Yfirlit og reikningar.
- Smelltu á sækja.
Innihald reiknings
Á reikning má finna:
- Reikningsnúmer og dagsetning reiknings: Auðkennisnúmer reiknings sem tengist bara þeim eina reikningi.
- Upplýsingar um seljanda: Teya Iceland hf.
- Lýsing gjalds: Skýrt heiti á gjaldinu (til dæmis, Mánaðarleiga).
- Þjónustutímabil: Dagsetningar sem gjaldið nær yfir (til dæmis 01/04/2026 - 30/04/2026).
- VSK-upphæð: Upphæð virðisaukaskatts.
Loka samningi
Við verðum að fá staðfestingu frá skráðum aðila hvort eigi að loka samningi og þá hvaða samningi (MID), ef til staðar eru bæði posa- og vefsamningar. Ef neikvæð staða er á samningi þarf að millifæra á bankareikning Teya áður en hægt er að loka honum.