Greinar um þetta efni

Stjórnanda PIN númer í posa

Stjórnanda PIN-númer er fjögurra stafa kóði sem vernda upplýsingar reksturs og aðgerðir sem eru í posanum þínum. Hér eru leiðbeiningar sem útskýra hvernig kóðinn virkar, hvernig hægt er að breyta honum og hvað skal gera þegar hann gleymist.

Hvað er stjórnenda PIN númer?

Stjórnenda kóðinn þinn setur frekari vörn á tækið þitt og tryggir að einungis aðilar sem vita PIN-númerið geta framkvæmt aðgerðir eins og:

  • Skoða færslur
  • Framkvæma endurgreiðslur
  • Skoða söluyfirlit

Þú setur PIN númerið upp þegar þú virkjar posann þinn, en hægt að breyta því hvenær sem er. Einnig er hægt að velja í stillingum hvað þarfnast kóða og hvað ekki. 

Mikilvægt

Ekki skrifa niður kóðann heldur láta þá starfsmenn vita sem þurfa hann til að passa að upplýsingar og aðgerðir í posa eru örugg.

Hvernig breyti ég um stjórnenda PIN

Ef þú vilt breyta núverandi númeri vegna einhverra ástæða, fylgdu neðangreindum skrefum:

  1. Smelltu á Valmynd.
  2. Farðu í Posastillingar.
  3. Stjórnanda PIN númer.
  4. Veldu Breyta Stjórnanda PIN númer.
  5. Smelltu inn núverandi PIN-númer.
  6. Búðu til nýtt og staðfestu.

Endurstilla stjórnenda PIN

Ef þú hefur gleymt PIN númerinu þá getur skráður aðili endurstillt það með því að staðfesta auðkenni sitt. Það fer eftir því hvort þú sért prókúruhafi/eigandi eða starfsmaður hver skrefin eru.

  1. Ýttu á Valmynd.
  2. Farðu síðan á Söluyfirlit (eða aðrar aðgerðir) til að PIN skjárinn komi upp.
  3. Smelltu á Gleymt PIN. 

Spurt er um staðfestingu hvort þú sért eigandi reksturs. 

Ef þú ert skráður aðili

Aðeins skráðir aðilar hjá Teya geta endurstillt PIN númer. Það er þegar til er aðgangur sem er tengdur við netfang eiganda eða stjórnanda reksturs.

  1. Veldur Já, ég er skráður aðili
  2. Staðfestu auðkennið þitt með að skanna QR-kóða eða fjarinnskráningu:
    • Skannaðu QR-kóðann með Teya appinu, eða;
    • Prófa fjarinnskráningu með því að fara inná id.teya.com/verify
    • Netfang: Innskráning með Teya ID. Skráðu þig inn með því netfangi sem var gefið upp þegar sótt var um hjá Teya eða öðru skráðu netfangi hjá Teya.
  3. Fylgdu síðan skrefunum sem koma á posann til að endurstilla PIN-númer.

Ef þú ert ekki skráður aðili

Ef þú ert starfsmaður eða hefur annað hlutverk þá er ekki hægt að endurstilla nema með aðstoð.

  1. Veldu Nei, ég er ekki skráður aðili 
  2. Eigandi þarf að klára staðfestingu með þeirra auðkenni.
  3. Þegar staðfesting er komin getur starfsmaður fylgt skrefunum á posanum til að klára að endurstilla kóðann. 

Mikilvægt

Ef skráður aðili reksturs er ekki með aðgang að skráðu netfangi eða getur ekki klárað staðfestingu er ekki hægt að endurstilla kóðann. 

Var þessi grein gagnleg?
2 af 2 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig