Greinar um þetta efni

Fyrstu skrefin með Teya posann

Hér eru leiðbeiningar sem þú getur fylgt við uppsetningu á posa.  

Áður en þú byrjar

Hafðu eftirfarandi til handa: 

  • Nettengingu
  • Auðkenni: Netfang og lykilorð að Teya aðganginum þínum.
  • Leyfi: Ef þú ert ekki eigandi, gakktu úr skugga um að búið er að bæta þér við sem notanda að rekstrinum.

Hvað fylgir posanum?

Athugaðu hvort kassinn þinn inniheldur:

  • Posa
  • Hleðslutæki og hleðsludokku
  • Auka posarúllu

Skref 1: Kveikja á posanum

59317507-56d2-448b-adb0-d5b7b9589876.png

 

 

  1. Ræsitakka er að finna vinstra megin.
  2. Haltu takkanum inni í nokkrar sekúndur til að kveikja á posanum.
  3. Þegar að kveikt hefur verið á posanum, smelltu á Byrja til að hefja uppsetningu.

 

 

 

 

3a994f02-d742-4532-b7f3-c1d411a80931.png
  1. Ræsitakka er að finna hægra megin.
  2. Haltu takkanum inni í nokkrar sekúndur til að kveikja á posanum.
  3. Ef posinn byrjar að hlaða niður hugbúnaði bíddu í nokkrar mínútur þar til því er lokið.
  4. Þegar að kveikt hefur verið á posanum, smelltu á Byrja til að hefja uppsetningu.   

Skref 2: Velja tungumál og nettengingu

Eftir að þú hefur kveikt á posanum er fyrsta skrefið að velja tungumál sem þú vilt að posinn þinn sé stilltur á. Þú getur breytt tungumálinu seinna ef þú þarft að breyta því með því að fara í posastillingar.

Til að posinn geti tekið á móti greiðslum þarf hann að vera með nettengingu. Posinn kemur með SIM korti og er sjálfkrafa tengdur við frítt farsímanet. Það fer eftir staðsetningu þinni og aðstæðum, tækið getur tengst 4G eða 5G neti.

  1. Tengdu þig við Wi-Fi á listanum.
  2. Settu inn Wi-Fi lykilorðið.
  3. Bíddu eftir staðfestingu að nettenging tókst.

Við mælum með að tengja posann þinn við Wi-Fi net. Það tryggir stöðugri tengingu sem gerir þér kleift að halda áfram að vinna úr greiðslum jafnvel á annasömum tímum.

Mikilvægt: vegna hugsanlegra öryggisvandamála skaltu forðast að tengja posann við opið Wi-Fi. Mikil hætta er á að greiðslum sé hafnað eða seinkað á almennu neti.

Skref 3: Tengdu posann við Teya samninginn þinn

Það þarf að tengja posann við samninginn þinn. Hægt er að gera þetta á tvenna vegu.

Aðferð 1: Virkja með Teya appinu (Mælum með!) Notaðu þessa aðferð ef þú ert með Teya appið í símanum.

  1. Það ætti að vera QR kóði á skjá posans.
  2. Opnaðu Teya appið í símanum þínum og skráðu þig inn.
  3. Smelltu á Meira TækiVelja samning→ Virka posann.
  4. Skannaðu QR kóðann sem birtist á skjánum með símanum þínum.
  5. Fylgdu skrefunum á bæði skjá posans og síma til að staðfesta.

Aðferð 2: Virkja í gegnum þjónustuvef Teya. Notaðu þessa aðferð ef þú ert að nota tölvu eða ert ekki með Teya appið. 

  1. Veldu Fjarinnskráning á skjánum á posanum þínum.
  2. Kóði ætti að birtast á posanum.
  3. Farðu inná id.teya.com/verify í tölvu eða síma.
  4. Skráðu þig inn á Teya aðganginn þinn.
  5. Settu inn kóðann sem birtist á skjánum á posanum og smelltu á staðfesta.

Skref 4: Veldu og staðfestu samning

Veldu samninginn sem posinn á að vera tengdur við. Eftir að samningur hefur verið staðfestur er ekki hægt að breyta um samning, svo mikilvægt er að fara vel yfir áður en staðfest er þetta skref.

  1. Farðu vel yfir alla samninga ef það eru fleiri en einn samningur skráðir á þig.
  2. Veldu verslunina þar sem posinn á að vera tengdur.

Skref 5: Setja upp PIN-númer stjórnanda

PIN-númerið er notað þegar þarf að gera endurgreiðslur, skoða söluyfirlit eða breyta stillingum.

  1. Búðu til stjórnanda PIN-númerið þitt.
  2. Staðfestu PIN.

Uppsetning er klár og þú getur byrjað að taka við færslum!

Eftir að uppsetning er klár, færist þú yfir á aðalvalmynd posans. Hér getur þú tekið á móti færslum, notað reiknivélina og fengið upplýsingar um mikilvæg skilaboð.

Til að taka á móti fyrstu færslunni þinni, sláðu inn upphæð og notaðu eftirfarandi greiðsluleið:

  • Snertilaust Kort: Kort eða sími er sett upp við efri hluta posans.
  • Kort: Settu kortið inn í neðri hluta posans eða á hægri hlið posans (fer eftir tegund posa)
  • Kort með segulrönd: Renndu kortinu í röndinni á posanum.

Sérsniðnir eiginleikar í posanum þínum

Þú getur sérsniðið stillingar posans til að henta þínum rekstri. Þú getur virkt þjórfé, bætt við sérsniðnum hnöppum fyrir algengar upphæðir, gefið viðskiptavin kost á að skipta reikningi í margar greiðslur og fleira. 

Til að virkja eiginleikana

Þegar posinn er uppsettur er hægt að kveikja eða slökkva á eiginleikum hvenær sem er.

  1. Opnaðu Valmynd.
  2. Smelltu á Greiðslustillingar.
  3. Veldu hvort þú viljir hafa kveikt eða slökkt á þeim eiginleikum sem eru í boði.

Eiginleikar í boði

  • Þjórfé: Kveiktu á þessum eiginleika til að gefa viðskiptavinum þínum möguleika á að bæta við þjórfé. Einnig hægt að velja stillingu fyrir þjórfé, auka sýnileika eða leyfa val á þjórfé í greiðsluferli. 
  • Flýtiupphæðir: Bættu við fyrirfram ákveðnum upphæðum á aðalvalmyndinni sem eru oft notaðar. 
  • Skipta reikningi: Gefðu viðskiptavinum kost á að skipta reikningi í margar greiðslur.
  • Aðrar kortategundir: Kveiktu á þessum eiginleika til að posinn þinn samþykki sjálfkrafa American Express, Diners Club og Discover greiðslur. 
  • Greiðslubeiðnir: Leyfðu viðskiptavinum þínum að borga hvar sem er með öruggum greiðslutengli sem er sendur með SMS eða tölvupósti. 
  • Heimildir: Gakktu úr skugga um að viðskiptavinur þinn hafi næga innistæðu tiltæka áður en þú veitir vöru eða þjónustu.
  • Tilvísun greiðslu: Virkja tilvísun greiðslu, gefðu hverri færslu tilvísunarnúmer sem verður sjáanlegt á kvittunum.
Var þessi grein gagnleg?
17 af 23 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig