Hægt er að kveikja á sjálfvirkri kvittunarprentun þar sem kvittanir prentast við hverja greiðslu. Ef kvittun söluaðila er ekki virk getur þú alltaf sótt afrit af kvittunum undir Færslur og endurgreiðslur. Þú færð einnig valmöguleika eftir hverja færslur að prenta Kvittun viðskiptavinar eða Kvittun seljanda ef þú ákveður að prenta afrit.
Áður en þú byrjar
- Til þess að prenta þarf rafhlaðan á posanum að vera yfir 15%. Ef rafhlaðan er lægri en það verður þú að hlaða posann og reyna aftur seinna.
- Posinn þarf einnig að hafa nægan pappír til að hægt sé að prenta.
Posarúlla
Teya posinn þinn notar hefðbundna stærð af posarúllum:
- Lengd: 57 mm
- Breidd: 20 m
Það fylgir með auka posarúlla en síðan er hægt að kaupa posarúllur í öllum helstu verslunum með skriftstofuvörur.
Kveikja á sjálfvirkri kvittunarprentun
- Smelltu á Valmynd.
- Svo Greiðslustillingar.
- Sláðu inn PIN-númer stjórnanda.
- Virkjaðu Kvittun söluaðila. Hnappurinn verður grænn þegar hann er virkur.
- Kvittanir söluaðila munu prentast sjálfkrafa við hverja færslu.
Fela fullt heimilisfang á kvittun
Virkjaðu til að sýna aðeins land og borg á kvittun viðskiptavinar.
- Farðu í Valmynd > Greiðslustillingar.
- Smelltu á Kvittanir.
- Virkjaðu Fela fullt heimilisfang á kvittun.
Endurprenta kvittun
- Smelltu á Valmynd.
- Veldu Færslur og endurgreiðslur.
- Sláðu inn PIN-númer stjórnanda.
- Smelltu á færsluna sem þú vilt prenta afrit af kvittun fyrir.
- Veldu hvort sem þú vilt Kvittun viðskiptavinar eða Kvittun seljanda.
Rafrænt afrit af kvittun með Teya appinu
Hægt er að skoða og sækja rafrænt afrit af kvittun í gegnum Teya appið. Þessi eiginleiki er opinn fyrir notendur sem eru með aðgang að fyrirtækinu.
- Skráðu þig inn á Teya appið.
- Meira > Færslur.
- Finndu færsluna sem þú vilt skoða.
- Smelltu á
og sækja.