Þessi grein útskýrir hvernig á að endurgreiða viðskiptavinum að hluta eða að fullu með því að nota posa, Teya appið og þjónustuvef Teya. Farið er yfir skilyrði, afgreiðslutíma og hvernig hægt er að athuga stöðu endurgreiðslu.
Áður en þú byrjar
- Einungis er hægt að endurgreiða á sama kort og greiðsla var tekin af.
- Viðskiptavinir þurfa ekki að vera á staðnum til að fá endurgreitt.
- Nota skal stjórnanda PIN-númer (fyrir posa) eða lykilorð/ auðkenni (með Teya appinu og þjónustuvef) til að staðfesta endurgreiðsluna.
Hvernig endurgreiði ég
- Opnaðu Valmyndina efst í hægra horninu.
- Ýttu á Færslur og endurgreiðslur.
- Leitaðu að færslunni eða notaðu kortið/leitarvélina/síur til að finna færsluna sem þú vilt endurgreiða.
- Þegar þú finnur færsluna sem þú vilt endurgreiða smellir þú á hana.
- Smelltu á Endurgreiða.
- Sláðu inn fjögurra stafa PIN-númer.
- Þá opnast gluggi sem biður þig um að velja Full endurgreiðsla, eða stimpla inn þá upphæð sem á að endurgreiða.
- Smelltu á Áfram.
- Athugaðu hvort að endurgreiðsluupphæðin stemmi og smelltu á Endurgreiða. Athugið, þetta er seinasta skrefið sem þú hefur til þess að hætta við endurgreiðsluna.
- Skráðu þig inn.
- Smelltu á Færslur eða Síðustu færslur á sölu síðunni.
- Finndu færsluna sem þú vilt endurgreiða með því að leita að síðustu fjórum í kortanúmeri eða síum.
- Smelltu á færsluna og Endurgreiða.
- Þá opnast gluggi sem biður þig um að velja Full endurgreiðsla, eða stimpla inn þá upphæð sem á að endurgreiða.
- Smelltu á Endurgreiða.
- Staðfestu aðgerðina með lykilorði eða auðkenni.
- Skráðu þig inn.
- Smelltu á Færslur í aðgerðarlista vinstra megin á skjánum.
- Finndu færsluna sem þú vilt endurgreiða með því að velja í síunum.
- Smelltu á færsluna og Endurgreiða.
- Þá opnast gluggi sem biður þig um að velja Full endurgreiðsla, eða stimpla inn þá upphæð sem á að endurgreiða.
- Smelltu á Endurgreiða og staðfestu aðgerðina.
Athugið - Endurgreiðslan getur verið að fullu eða að hluta, fer allt eftir vörunni eða þjónustunni sem viðskiptavinurinn þinn er að skila. Athugið að upphæð endurgreiðslu getur ekki verið hærri en upphæð upprunalegrar færslu.
Athuga stöðu endurgreiðslu
Það getur tekið endurgreiðslur 2-5 virka daga að skila sér inn á kort viðskiptavinar en getur verið breytilegt eftir útgáfubanka korthafa. Ef færslan var gerð sama dag tekur aðeins um 30 mínútur fyrir bakfærsluna að birtast viðskiptavini.
Staðfesta stöðu endurgreiðslu:
- Posi: Smelltu á Valmynd > Færslur og endurgreiðslur
- Teya appið: Smelltu á Sala og Síðustu færslur.
- Þjónustuvefur Teya: Smelltu á Sala og síðan Færslur.
Mögulegar stöður
| Staða | Þýðir |
|---|---|
| Greiðsla/Endurgreiðsla samþykkt | Færslan tókst. |
| Greiðslu/Endurgreiðslu hafnað | Færslan tókst ekki. |
| Greiðsla/Endurgreiðsla ógild | Færslan var ógild af seljanda samdægurs eða sjálfkrafa af kerfinu. |
| Greiðsla/Endurgreiðsla í í vinnslu | Færslan hefur verið stofnuð en hefur ekki enn verið unnin af bankakerfinu. Getur verið tekin til baka og ekki farið í gegn. |
Af hverju get ég ekki gengið frá endurgreiðslu?
Ef þú ert að endurgreiða og sérð skilaboðin "Hámark neikvæðrar stöðu náð" þýðir það að samningurinn þinn er í neikvæðri stöðu eða þá að upphæð endurgreiðslu er hlutfallslega of há miðað við veltu síðustu vikur.