Endurgreiðslur á Þjónustuvefnum (B-Online)

Uppfært 

Á Þjónustuvefnum er hægt að endurgreiða viðskiptavinum þínum fyrir bæði posafærslur og netfærslur. Endurgreiðslan getur verið að fullu eða að hluta, háð þeirri vöru og þjónustu sem viðskiptavinir þínir eru að skila.

Endurgreiðslur á Þjónustuvefnum fyrir posafærslur

Lestu frekari leiðbeiningar hér að neðan til að læra hvernig á að endurgreiða posafærslur á Þjónustuvefnum þínum.

  1. Skráðu þig inn á Þjónustuvefinn.

  2. Á valmyndinni vinstra megin skaltu velja Greiðslukort > Færslur.

  3. Leitaðu að færslunni sem þú vilt endurgreiða með því að nota mismunandi síur, t.d. dagsetningu eða tímabili.

  4. Veldu Seljendasamning.

  5. Finndu færsluna sem þú vilt endurgreiða.

  6. Staðfestu allar upplýsingar og ýttu á Endurgreiða.

Athugið: Fyrir fulla endurgreiðslu þarf ekki að breyta neinu. Fyrir endurgreiðsla að hluta þarft þú hins vegar að breyta upphæðinni í þá upphæð sem þú vilt endurgreiða.

7. Þú getur líka valið netfang sem þú getur sent á viðskiptavininn svo þeir viti stöðuna á endurgreiðslunni.

8. Þú getur líka bætt við frekari upplýsingum sem koma fram á endurgreiðslukvittuninni.

9. Þegar þú hefur sett allar nauðsynlegar upplýsingar inn þarftu að ýta á Staðfesta endurgreiðslu.

10. Endurgreiðslan ætti að berast korthafa á næstu 3-10 dögum.

Mikilvægt: Upphæð endurgreiðslunnar má ekki vera hærri en upphæð upprunalegu færslunnar.

Endurgreiðslur í B-Online fyrir netfærslur

Hér að neðan eru leiðbeiningar til að læra hvernig á að endurgreiða viðskipti fyrir netfærslur á Þjónustuvefnum þínum.

  1. Skráðu þig inn á Þjónustuvefinn.

  2. Á valmyndinni vinstra megin skaltu velja Vefgreiðslur > Færslur.

  3. Leitaðu að færslunni sem þú vilt endurgreiða með því að nota mismunandi síur, t.d. tímabil, upphæð, kortanúmer eða RRN.

  4. Veldu Seljendasamning.

  5. Finndu færsluna sem þú vilt endurgreiða.

  6. Staðfestu allar upplýsingar og ýttu á Endurgreiða.

  7. Áður en þú staðfestir endurgreiðsluna hefurðu tækifæri á að senda viðskiptavinum þínum Endurgreiðslukvittun í tölvupósti með skýringu á endurgreiðslunni.

8. Þegar þú hefur sett allar nauðsynlegar upplýsingar inn þarftu að ýta á Staðfesta endurgreiðslu.

9. Endurgreiðslan ætti að berast korthafa á næstu 3-10 dögum.

Athugið: Fyrir fulla endurgreiðslu þarf ekki að breyta neinu. Fyrir endurgreiðsla að hluta þarft þú hins vegar að breyta upphæðinni í þá upphæð sem þú vilt endurgreiða.

Hætta við endurgreiðslu á netfærslu

Ef þú gerðir mistök og vilt afturkalla endurgreiðsluna hefurðu möguleika á að ýta á Hætta við til miðnættis sama dag og þú endurgreiddir færsluna. Afturköllun verður ekki möguleg eftir miðnætti.

Mikilvægt: Upphæð endurgreiðslunnar má ekki vera hærri en upphæð upprunalegu færslunnar.