Hvernig framkvæmir Teya áreiðanleikakönnun ?
- Innskráning: Skráðu þig inn hér með Teya ID til að nálgast KYC áreiðanleikakönnunina.
- Gefðu nákvæmar upplýsingar: Vinsamlegast gefðu okkur nákvæmar og uppfærðar upplýsingar um þig og þinn rekstur til að hjálpa okkur að sannreyna hver þú ert.
- Senda: Þegar þú hefur staðfest auðkenni þitt með rafrænu auðkenni og viðskiptaupplýsingar ættir þú að fá staðfestingu að þetta hafi tekist.
Skjöl til staðfestingar
Nauðsynlegt er að senda inn viðbótarupplýsingar eða skjöl sem óskað er eftir svo hægt sé að staðfesta upplýsingar um rekstur þinn.
Staðfesting á auðkenni aðila og heimilisfangi reksturs
- Auðkenni
Rafrænt auðkenni með símanúmeri eða Auðkennis appinu, eða löggild persónuskilríki eins og ökuskírteini eða vegabréf.
- Heimilisfang
Reikningur stílaður á reksturinn, ekki eldri en 3 mánaða gamall þar sem nafn og heimilisfang reksturs kemur fram.
Staðfesting á rekstri
Þú verður að útvega eitt af eftirfarandi til að sannreyna rekstur :
- Stafrænn sýnileiki
Hlekkur að vefsíðu reksturs, samfélagsmiðlum eða virk auglýsing.
- Reikningar/nótur
Reikningur stílaður á reksturinn, ekki eldri en 3 mánaða gamall þar sem nafn og heimilisfang reksturs kemur fram.
Eftirlitstími og Uppgjör
- Eftirlit: Eftirlitsteymi Teya fer yfir upplýsingar reksturs innan 48 tíma.
- Viðbótarupplýsingar: Ef við þurfum viðbótarupplýsingar eða frekari skjöl til að klára yfirferð munum við hafa samband með tölvupósti um skýr næstu skref.
- Að lokinni yfirferð: Þegar yfirferð er lokið er sendur tölvupóstur ef upplýsingar hafa verið staðfestar.
Greiðslur á meðan verið er að fara yfir upplýsingar
Þú getur tekið á móti færslum á meðan staðfesting stendur yfir. Uppgjör er hins vegar ekki greitt út fyrr en næsta virka dag eftir að yfirferðinni er lokið.
Regluleg endurskoðun á áreiðanleikakönnun - halda upplýsingum um aðganginn þinn uppfærðum
Sem eftirlitsskyldur fjármálaþjónustuveitandi er okkur skylt að framkvæma reglubundnar áreiðanleikakannanir á öllum viðskiptavinum okkar til að tryggja að upplýsingar um þá séu réttar og að við vitum hverjir nýta sér þjónustu okkar og í hvaða tilgangi.
Teya gæti haft samband við þig til að:
- Staðfesta upplýsingar sem við höfum nú þegar um reksturinn þinn.
- Óska eftir uppfærðum skjölum ef eitthvað vantar eða hefur runnið út.
Næsta skref: Setja inn þær upplýsingar sem beðið er um með því að opna hlekkinn sem er í póstinum. Þar getur þú síðan staðfest eða uppfært viðskiptaupplýsingarnar.
Þegar við höfum móttekið upplýsingarnar munum við hafa samband við þig ef við höfum frekari spurningar eða þurfum frekari upplýsingar.
Mikilvægt: Endilega hafðu samband við þjónustuver Teya ef þú hefur frekari spurningar eða nærð ekki að opna hlekkinn.