Greinar um þetta efni

Óheimiluð og takmörkuð viðskiptastarfsemi

Hjá Teya er markmið okkar að styrkja lítil og meðalstór fyrirtæki, hjálpa þeim að vaxa og ná framförum. Við trúum á að gera fjármálaþjónustu aðgengilega fyrir alla með því að bjóða upp á þær lausnir og innviði sem þarf til að ná árangri. Hins vegar, sem fjármálafyrirtæki ber okkur að fylgja ákveðnum lögum og reglum sem hafa það markmið að vernda okkur, okkar viðskiptavini og fjármálakerfið í heild sinni.

Þetta felur í sér að við getum ekki tekið á móti ákveðnum söluaðilum þar sem viðskiptastarfsemi þeirra fellur fyrir utan áhættuvilja Teya. Við skiljum að þessar takmarkanir geta verið hamlandi og þess vegna viljum við vera gagnsæ um hvers vegna ákveðin fyrirtæki geta ekki nýtt sér greiðsluþjónustu Teya.

Í ákveðnum tilfellum er Teya háð takmörkunum sem settar eru af þjónustuveitendum Teya varðandi bankaþjónustu, sem starfa eftir sínu eigin regluverki. Teya vinnur náið með þessum aðilum með því að endurskoða og betrumbæta þessar stefnur í takt við þróun markaðarins. Samhliða því að tala fyrir breytingum sem betur endurspegla þarfir lítilla og meðalstórra fyrirtækja verðum við að fylgja viðeigandi kröfum til þess að tryggja áframhaldandi áreiðanleika og öryggi í þjónustu okkar.

Óheimiluð viðskiptastarfsemi

Eftirfarandi starfsemi er ekki heimiluð að nýta sér greiðslulausnir Teya.

FlokkurÞjónusta / vörur
Millifærslur / Peningaúttekt
  • Millifærsluþjónusta
  • Óskráð gjaldeyrisþjónusta
  • Jafningjatengdar peningasendingar

Athugið: Smávöruverslanir sem bjóða upp á peningaúttektir í aukastarfsemi eru leyfðar með fyrirvara um aukið eftirlit.

Stafrænir miðlar
  • Leikir
  • Hugbúnaðarforrit
  • Endursöluaðilar skýjageymsluþjónustu 
  • Stafrænar vörur
Veðlánastofur og endursöluaðilar
  • Gull og verðmætur málmur 
  • Endursöluaðilar raftækja
  • Sala á notuðum ökutækjum
Skotvopn
  • Byssur
  • Skotfæri

Athugið: Sala á skotvopnum er stranglega bönnuð. Aðeins er leyft að leigja byssur á staðnum og selja skotfæri til notkunar á æfingasvæði. Sérhver starfsemi sem leyfir viðskiptavinum að kaupa skotvopn eða fjarlægja þau af svæðinu verður bönnuð. Sala á skotfærum til notkunar utan staðarins er einnig bönnuð.

Bein markaðssetning
  • Tryggingamiðlun
  • Símamarkaðssetning og þjónustuver 
  • Ferðaskrifstofur sem selja flugpakka 
  • Áskriftarþjónustur
Útborgun reiðufjár og hálfreiðufjárfyrirtæki
  • Innlausnarþjónusta á ávísunum 
  • Útgefandi fyrirframgreiddra debetkorta
  •  Gjaldeyrisskipta hraðbankar
Fjárhættuspil
  • Fjárhættuspil á netinu 
  • Íþróttaveðmál 
  • Lottó og happdrætti
Stjórnmála- og trúarstofnanir
  • Fjáröflun stjórnmálaflokka 
  • Styrkir fyrir trúarsöfnuð 
  • Alþjóðleg trúboðsverkefni
Uppboð og fasteignatengdar þjónustur
  • Uppboð á listaverkum
  • Fasteignasölur fyrir lúxuseignir
  • Eignasöluþjónusta
Stefnumótaþjónusta
  • Stefnumótasíður
  • Stefnumótaþjónusta
  • Fylgdarþjónusta
Sala á notuðum ökutækjum
  • Sala á notuðum bílum
  • Sala á öðrum notuðum farartækjum
Takmörkuð viðskiptastarfsemi

Eftirfarandi starfsemi krefst aukinna áreiðanleikakannana áður en Teya getur veitt þjónustu. Samþykki er metið út frá hverju máli fyrir sig og Teya áskilur sér rétt til að hafna eða breyta aðgengi að þjónustu vegna breyttra áhættuþátta.

Takmörkuð viðskiptastarfsemi og kröfur þeirra

FlokkurKröfur
KlúbbarStaðfesting á því að fullorðinsafþreying eða vændi eigi sér ekki stað er áskilið.
NuddstofurSönnun á leyfi eða önnur gögn sem staðfesta starfsemi fyrirtækisins er áskilið.
Skartgripir og aðrar dýrar vörurAukinna gagna kann að vera krafist, þar á meðal staðfesting á viðskiptum síðustu þriggja ára, reikningar tengdir fyrri sölu eða uppgjörsyfirlit síðustu þriggja mánaða frá fyrri færsluhirði.
GóðgerðarfélögStaðfesting á skráningu félags hjá viðeigandi staðbundnu yfirvaldi er áskilið. Ársreikninga síðustu þriggja ára kann einnig að vera óskað. Athugið: Fjárvörslusjóðir sitja utan áhættuvilja Teya og slík félög eru því ekki tekin í viðskipti.
Bílaþjónusta og verkstæðiSkjöl sem staðfesta starfsemi fyrirtækisins eru áskilin.
FerðaskrifstofurStaðfesting á gildum leyfum er áskilið.
SkotsvæðiStaðfesting á gildum leyfum er áskilið og með þeim skilyrðum að boðið sé upp á skotþjónustu á staðnum.
VerktakarAfrit af þjónustusamningum kann að vera áskilið í því skyni að staðfesta starfsemi fyrirtækisins.
Fasteignatengdar þjónusturViðbótarskjöl kunna að vera áskilin í því skyni að staðfesta starfsemi fyrirtækisins, svo sem afsal, kaupsamninga eða uppgjörsyfirlit frá fyrri færsluhirði.
Listamenn og galleríViðbótarskjöl kunna að vera áskilin, svo sem staðfesting á viðskiptasögu eða uppgjörsyfirlit síðustu þriggja mánaða frá fyrri færsluhirði.
BílasölurViðbótarskjöl kunna að vera áskilin, svo sem til að staðfesta uppruna ökutækja og staðfestingu á færslum.
Námskeið á netinu / FjarnámStaðfesting á leyfi eða önnur gögn sem staðfesta starfsemi fyrirtækisins er áskilið.

Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki

Teya heimilar ekki notkun þjónustu sinnar í tengslum við hvers kyns viðskipti eða sölu á vörum eða þjónustu, hvort sem það er beint eða óbeint, í tengslum við eftirfarandi:

  • Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki – Seljendur sem staðsettir eru í eða búa í lögsagnarumdæmum sem Teya hefur skilgreint sem áhættusöm.
  • Áhættusamir einstaklingar – Seljendur sem Teya hefur skilgreint sem áhættusamir, svo sem vegna lagalegra, samningalegra eða viðskiptalegra ástæðna, þar á meðal þá sem eru á þvingunarlistum útgefnum af Bretlandi, Evrópusambandinu, Sameinuðu þjóðunum eða OFAC (U.S. Office of Foreign Asset Control).

Þessi listi er reglulega endurskoðaður og getur breyst í takt við þróun laga og reglugerða. Ef þú ert óviss um hvort viðskipti þín uppfylli ofangreindar kröfur, vinsamlegast hafðu samband við þjónustuver okkar fyrir frekari leiðbeiningar.

Teya er meðvitað um að tækni, regluverk og viðskipti eru í stöðugri þróun. Samhliða breyttu landslagi mun áhættuvilji Teya einnig taka breytingum. Eftir sem áður leggur Teya áherslu á að taka tillit til endurgjafar frá seljendum og að vinna með þjónustuveitendum Teya á sviði bankaþjónustu í því skyni að bjóða þjónustu í fleiri atvinnugreinum. Aðferðir okkar munu þróast í takt við tímann til að tryggja að við styðjum við lítil og meðalstór fyrirtæki á sama tíma og við tryggjum áframhaldandi áreiðanleika og öryggi í þjónustu okkar.

Var þessi grein gagnleg?
4 af 4 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig