Greinar um þetta efni

Vörumst svindl

Þessar leiðbeiningar hjálpa þér að sporna við grunsamlegri hegðun sem getur haft áhrif á aðganginn þinn eða greiðslur. Lærðu að koma auga á viðvörunarmerki, sannreyna að skilaboð berist frá Teya teyminu og vernda viðskiptaupplýsingar þínar.

Að bera kennsl á grunsamlega hegðun

Grunsamleg virkni er hvers kyns aðgerð sem miðar að því að fá aðgang að reikningnum þínum, taka við greiðslum eða breyta viðskiptaupplýsingum án þíns leyfis. Þessar tilraunir skapa oft falska tilfinningu um brýnni þörf eða ósk ​​eftir viðkvæmum upplýsingum.

Algeng viðvörunarmerki

  • Beiðnir um viðkvæmar upplýsingar: Passið ykkur á skilaboðum þar sem beðið er um lykilorðið ykkar, stjórnanda PIN-númer eða einnota aðgangskóða. 
  • Breytingar á uppgjöri: Fylgist með beiðnum um að breyta bankaupplýsingum eða uppgjör á nýjan reikning.
  • Óvæntar hreyfingar: Athugið hvort óþekktar endurgreiðslur, greiðslur eða endurkröfur sjáist inn á ykkar svæði.
  • Þrýstingur til aðgerða: Hunsaðu pósta eða hringingar frá aðilum sem segjast vera frá Teya og hóta að loka muni samning ef þú bregst ekki tafarlaust við. Teya sendir ávallt frá hjalp@teya.is eða hjalp@info.teya.com og með fyrirvara um slíkar aðgerðir.
  • Grunsamlegir hlekkir: Ekki smella á hlekki sem þú treystir ekki. Hafðu frekar samband við okkur og við skoðum þetta með þér.
  • Beiðni um aðgang: Hafnaðu beiðnum um uppsetningu hugbúnaðar eða deila aðgangi að skjá með óþekktum aðilum.

Gakktu úr skugga að þetta sé í raun Teya

Ef þú ert óviss hvort póstur sé frá Teya þá er hægt að hafa í huga að Teya teymið mun:

  • Aldrei biðja um lykilorð eða stjórnenda PIN-númer.
  • Ávarpa þig nákvæmlega og nota réttar upplýsingar um þig og fyrirtækið þitt.
  • Beina þér eingöngu á opinberar Teya rásir (eins og Teya-appið eða þjónustuvef).

Passaðu upp á aðganginn þinn

Þú getur dregið úr áhættu með því að:

  • Halda upplýsingum þínum leyndum:  Ekki deila viðkvæmum upplýsingum eins og lykilorðum, stjórnenda PIN-númerum og kóðum. Gott er að nota flókin og mismunandi lykilorð sem helst tengjast ekki rekstrinum. 
  • Reglulegt eftirlit: Hafðu eftirlit með skýrslum, uppgjörum og færslum.

Tilkynntu grunsamlega virkni

Ef þú kemur auga á eitthvað grunsamlegt skaltu bregðast strax við til að vernda reksturinn þinn.

  1. Stöðvaðu samskipti: Ekki svara skilaboðum, smella á hlekki eða veita upplýsingar. 
  2. Verndaðu aðganginn þinn: Breyttu lykilorðinu þínu um leið og farðu yfir meðlimi undir Notendur og leyfi.
  3. Taktu saman gögn: Allt sem bendir til að um grunsamlega virkni er að ræða. 
  4. Tilkynntu þetta til Teya og við skoðum þetta með þér. 
Var þessi grein gagnleg?
1 af 2 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig