Að halda rekstrarupplýsingunum þínum réttum og uppfærðum er mikilvægur liður í áreiðanleikamati Teya. Ef breytingar verða á rekstrinum, til dæmis nýtt rekstrarheiti, heimilisfang eða breytt félagaform, verður þú að uppfæra Teya aðgang þinn til að koma í veg fyrir truflanir.
Uppfæra tengililiðaupplýsingar (netfang eða sími)
Hér á við um að uppfæra helstu tengiliðaupplýsingar líkt og netfang til að komast inn á aðganginn þinn og símanúmerið þitt sem notað er til að auðkenna þig.
Þar sem þetta eru viðkvæmar upplýsingar framkvæmum við öryggisathuganir til að staðfesta auðkennið þitt áður en breytingar eru gerðar. Hafðu samband við þjónustuver Teya til að staðfesta gamlar og nýjar upplýsingar.
Uppfæra viðskiptaupplýsingar (rekstrarheiti eða heimilisfang)
Fyldu eftirfarandi ferli ef þú vilt breyta heiti rekstursins eða samnings undir rekstrinum (birtist á kvittunum og posa) eða ef reksturinn/verslunin breytir um heimilisfang.
Nauðsynlegar upplýsingar
Til að uppfæra þessar upplýsingar þarftu að senda eftirfarandi á þjónustuver Teya:
- Viðvera á vef
Hlekkur að vefsíðu reksturs eða virk auglýsing á netinu.
- Reikningar
Reikningur sem stílaður er á rekstur eða eiganda. Má líka vera reikningur sem þú hefur gefið út til viðskiptavinar.
*Ef eldra rekstrarheitið birtist á posanum þínum getum við sent þér leiðbeiningar um hvernig á að uppfæra tækið þannig að nýja nafnið birtist eftir að breyting hefur verið gerð.
Breyting á fyrirtæki eða rekstrarformi
Sama fyrirtæki, sama kennitala
Ef aðeins er verið að breyta skráðu nafni fyrirtækis en kennitalan helst sú sama:
Sendu kennitölu
Sendu gamla nafnið
Sendu nýja nafnið
Staðfest skjal sem sýnir nýja nafnið
Ný kennitala eða nýtt rekstrarform
Ef breytingin felur í sér:
Nýja kennitölu
Nýtt félag
Breytingu á félagaformi
Þá þarf að stofna nýjan samning vegna regluvörslu.
Í þeim tilvikum skaltu hafa samband við þjónustuver Teya og við aðstoðum þig við breytingarnar.
Breyting á prókúruhafa eða forsvarsaðila
Ef uppfæra þarf skráðan aðila fyrirtækis:
Tryggðu að réttur aðili sé skráður með heimild til að koma fram fyrir hönd fyrirtækisins
Hafðu samband við þjónustuver Teya til að uppfæra upplýsingarnar
Ef fyrirtæki eða rekstur færist yfir á annan eiganda gæti þurft að stofna nýjan aðgang, en það fer eftir því hvernig breytingin er skráð.
Heimilisfang einstaklings
Ef uppfæra þarf heimilisfang prókúruhafa eða forsvarsaðila þarf að senda staðfestingu á heimilisfangi sem er dagsett innan þriggja mánaða.
Samþykkt skjöl:
- Ökuskírteini (að framan og aftan).
- Reikningur.
- Bankayfirlit.
- Fyrirtækjaskrá (Skatturinn).
Opna nýja verslun
Ef þú ert að opna aðra staðsetningu eða nýjan samning undir sama rekstri skaltu hafa samband við þjónustuverið okkar.