Í þessari grein eru leiðbeiningar hvernig á að tengja Teya posa við kassakerfi hjá DK. Hér fyrir neðan er farið yfir allt frá uppsetningarferlinu og hvernig á að taka á móti greiðslu í gegnum kassakerfi frá DK með Teya Payments.
Settu upp tengingu milli Teya Payments og dkPOS og sendu færslur úr einu kerfi í annað í nokkrum skrefum.
Skref 1: Tengdu Teya aðganginn þinn
- Skráðu þig inn í dkPOS með starfsmanna- eða verslunaraðgangi.
- Smelltu á Aðgerðir.
- Smelltu á Stillingar.
- Opnaðu Posar flipann.
- Í POS Terminal type, veldu Teya.
-
Smelltu á Authenticate hnappinn.
- Skannaðu QR kóðann með símanum þínum.
- Skráðu þig inn með Teya aðgangnum þínum.
- Þú færð tilkynningu um að auðkenning hafi tekist.
Athugið – Fyrir frekari upplýsingar um innskráningu með Teya aðganginum þínum getur þú skoðað þessa grein – Teya ID.
Skref 2: Veldu verslun (e. Store)
- Veldu viðeigandi verslun.
Athugið – Þú getur alltaf endurnýjað store-listann með því að ýta á Get available stores hnappinn.
Skref 3: Veldu posa
- Veldu þann posa sem þú vilt tengja við dkPOS.
Athugið – Þú getur alltaf endurnýjað terminal listann með því að ýta á Get terminals in store hnappinn.
Þegar þú hefur valið verslun og posa skaltu ekki gleyma að vista stillingar – F12.
Að hefja greiðslu
- Byrjaðu greiðslu með því að velja vöru og smella á Kort/greiðsla hnappinn.
- Þetta mun senda greiðslubeiðni í posann.
- Þegar greiðslu er lokið mun kvittun prentast.
Endurgreiða færslu
- Til að endurgreiða síðustu sölu, smelltu á Bakfæra hnappinn.
- Ýttu á Kort hnappinn aftur til að hefja endurgreiðsluna.
- Ýttu á Staðfesta að klára endurgreiðsluna.