Í þessari grein eru leiðbeiningar hvernig á að tengja Teya posa við kassakerfi hjá Reglu. Hér fyrir neðan er farið yfir allt frá uppsetningarferlinu og hvernig á að taka á móti greiðslu í gegnum kassakerfi frá Reglu með Teya Payments.
Skref 1: Tengdu Teya aðganginn þinn
- Smelltu á Tannhjólið á miðjum skjánum.
- Smelltu á Uppsetning valmöguleikann.
- Settu inn lykilorðið salt201 og smelltu á OK.
- Skráðu þig inn með Teya aðganginum þínum.
Athugið – Fyrir frekari upplýsingar um innskráningu með Teya aðganginum þínum getur þú skoðað þessa grein – Teya ID.
Skref 2: Veldu verslun (e. Store)
Eftir að þú hefur skráð þig inn sérðu lista yfir verslanir.
- Veldu viðeigandi verslun.
- Staðfestu tenginguna með því að smella á Yes.
Skref 3: Veldu posa
- Veldu þann posa sem þú vilt tengja við Regla POS.
- Staðfestu tenginguna með því að smella á Yes.
Að hefja greiðslu
- Veldu þá vöru sem þú vilt selja.
- Veldu greiðslumáta með því að smella á Card eða Kort.
- Við þetta mun opnast greiðslugluggi.