Greinar um þetta efni

Tenging við Noona

Í þessari grein eru leiðbeiningar hvernig á að tengja Teya posa við Noona. Hér fyrir neðan er farið yfir allt frá uppsetningarferlinu og hvernig á að taka á móti greiðslu í gegnum kassakerfi frá Noona með Teya posanum þínum.

 

Setja upp tengingu

Skref 1: Setja upp í Noona

  1. Skráðu þig inn á Noona HQ (í vafra).
  2. Opnaðu ≡ Valmyndina efst í vinstra horninu.
  3. Smelltu á Stillingar.
  4. Veldu Tengingar/Integrations.
  5. Skráðu þig inn með Teya aðganginum þínum.

Athugið – Fyrir frekari upplýsingar um innskráningu með Teya aðganginum þínum getur þú skoðað þessa grein – Teya ID.

IMG_0080.jpg Image (11)-1.jpg
Screenshot 2024-07-10 at 10.45.57 (2).jpg Image (12)-1.jpg
  1. Þér verður vísað aftur á Noona HQ.
  2. Opnaðu Greiðsluleiðir/Payment Methods og smelltu á Tengja posa/Connect terminal.

Athugið – Posinn er merktur með raðnúmerinu (S/N) aftan á posanum.

Image (13)-1.jpg Screenshot 2024-07-10 at 11.08.53.png
Screenshot 2024-07-10 at 11.09.11.png Screenshot 2024-07-10 at 11.09.35.png

 

Skref 2: Uppsetning á Teya posanum

  1. Ræstu greiðsluforritið með því að smella á Payments appið í aðalvalmyndinni.
  2. Opnaðu Valmyndina í efra hægra horninu.
  3. Smelltu á Kassakerfi.
  4. Sláðu inn PIN-númer stjórnanda.
  5. Virkjaðu Kassakerfisstillingu.
  6. Farðu til baka til að læsa posann í kassakerfisstillingu.

Athugið – Það verður að vera kveikt á þessum eiginleika til þess að tengingin milli Teya Payments og Noona sé virk. Þegar það er búið að virkja eiginleikann verður Teya Payments appið læst og tilbúið að taka á móti greiðslum.

Posinn þinn er nú tilbúinn til að taka við greiðslum í gegnum Noona.

 

Að hefja greiðslu

  1. Í Noona, veldu bókun í dagatalinu sem þú vilt skoða.
  2. Smelltu á Afgreiða hnappinn í neðra vinstra horninu.
  3. Veldu Vörur ef þörf er á. Þeim verður bætt við heildarupphæð greiðslunnar.
  4. Smelltu á bláa Greiða hnappinn neðst á skjánum.
  5. Veldu Greiðslukort valmöguleikann.

Athugið – Ef margir posar eru tengdir við Noona verðurðu beðin/n um að velja hvaða posa þú vilt nota.

  1. Greiðslan birtist sjálfkrafa í posanum.
  2. Notaðu snertilaust, örgjörva eða segulrönd til að greiða í posanum.
  3. Skjárinn mun birta Samþykkt fyrir heimilaða færslu.

Athugið – Ef þú vilt klára bókun í Noona án þess að viðkomandi hafi bókað í gegnum appið þarftu að smella á Ný sala í neðra hægra horninu í dagatalinu.

 

Endurgreiða færslu

Smelltu hér til að sjá nánari leiðbeiningar hvernig á að endurgreiða .

Endurgreiða í Teya posanum:

  1. Opnaðu Valmyndina með því að smella á X í vinstra horninu.
  2. Smelltu á Færslur og endurgreiðslur.
  3. Finndu færsluna með því að leita eða nota síur.
  4. Ýttu á færsluna og smelltu á endurgreiða.

Þá ertu búin/nn að endurgreiða færsluna í posanum en til að skrá endurgreiðsluna í Noona þarftu að:

Endurgreiða í Noona:

  1. Finna þá bókun sem á að endurgreiða.
  2. Smella á Reikningar. Þú getur einnig fundið það undir Sala → Reikningar.
  3. Smella á Endurgreiða og velja Greiðslukort.

Endurgreiðslan verður síðan skráð í Noona kerfinu.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig