Greinar um þetta efni

Tenging við Dineout ePOS

Í þessari grein eru leiðbeiningar hvernig á að tengja Teya posa við kassakerfi hjá Dineout ePOS. Hér fyrir neðan er farið yfir allt frá uppsetningarferlinu og hvernig á að taka á móti greiðslu í gegnum kassakerfi frá Dineout með Teya Payments.

Settu upp tengingu milli Teya Payments og Dineout ePOS og sendu færslur úr einu kerfi í annað í nokkrum skrefum.

 

Skref 1: Tengja við Teya aðganginn þinn

  1. Opnaðu ≡ Valmyndina í efra vinstra horninu.

    Valmynd í Dineout ePOS

  2. Opnaðu Stillingar.

    Stillingar í Dineout ePOS

  3. Smelltu á POS og veldu Teya.

    Velja Teya POS

  4. Undir Models veldu PosLink.

    Velja PosLink model

  5. Skannaðu QR-kóðann með símanum þínum.

    QR kóði fyrir tengingu

  6. Stimplaðu inn kóðann sem kemur upp og skráðu þig inn með Teya aðganginum þínum.

    Innskráningarskjár 1 Innskráningarskjár 2

 

Skref 2: Veldu verslun (e. store) og posa (e. terminal)

  1. Veldu þá verslun sem þú vilt tengja.
  2. Veldu viðeigandi posa sem þú vilt tengja. Þú getur séð raðnúmerið aftan á posanum.
  3. Smelltu á Submit.

    Velja verslun og posa

 

Skref 3: Gerðu prufufærslu

  1. Tenging er núna klár! Þú getur prófað hana með því að smella á Test neðst í hægra horninu. Færsla fyrir 1 kr. verður send í posann.

    Test hnappur Prufufærsla send í posa

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig