Greinar um þetta efni

Hvernig virkja ég Skipta reikningi ?

Skipta reikningi er eiginleiki í Teya posanum þínum sem gerir þér kleift að skipta einni færslu upp á marga viðskiptavini. Þú getur annaðhvort skipt heildarupphæðinni jafnt eða úthlutað sérsniðnum upphæðum á hvern og einn. Þessi grein útskýrir hvernig á að virkja eiginleikann og afgreiða skiptar greiðslur. 

Virkja Skipta reikningi

Áður en þú byrjar: Þú verður að virkja eiginleikann í stillingum til að geta gefið viðskiptavinum kost á að skipta reikningi í margar greiðslur.

  1. Opnaðu Valmyndina.
  2. Ýttu á Greiðslustillingar.
  3. Kveiktu á Skipta reikningi.

Núna ert þú tilbúin að bæta upplifun viðskiptavina þinna.

Taka við greiðslu með Skipta reikningi

Þú getur skipt reikningnum jafnt (til dæmis deilt 30.000 kr. á 3 þannig að hver greiði 10.000 kr.) eða með sérsniðnum upphæðum. 

  1. Sláðu inn heildarupphæð reiknings.
  2. Smelltu á við hliðina á Áfram.
  3. Veldu Skipta reikningi.
  4. Veldu í hversu marga hluta reikningurinn á að skiptast : 
    • Upphæðin skiptist jafnt: Veldu í hversu marga hluta þú vilt skipta heildarupphæðinni.
    • Breyta skiptingu: Veldu Breyta skiptingu til að setja inn mismunandi upphæðir fyrir hvern og einn. 
  5. Ýttu á Halda áfram til að klára hverja greiðslu.
  6. Taktu við greiðslu frá fyrsta viðskiptavin. 
    • Athugið: Viðskiptavinir geta notað mismunandi greiðslumáta (kort, snertilausar greiðslur eða símagreiðslur) fyrir sinn hluta.
  7. Endurtaktu ferlið þangað til að heildarupphæð hefur verið greidd.

Kvittanir og yfirlit

Posinn býr til yfirlit bæði fyrir einstaka viðskiptavini og fyrir þín gögn. 

  • Stakar kvittanir: Hver staðfest greiðsla fær sér kvittun fyrir þann viðskiptavin sem greiðir sinn hluta.
  • Reikningsyfirlit: Þegar búið er að greiða allt getur þú prentað út Reikningsyfirlit til að sjá allar greiðslurnar. 

 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig