MOTO-færslur (símgreiðslur) gera þér kleift að taka á móti færslum með því að slá inn kortaupplýsingar beint inn í posann þinn. Ef korthafi er ekki á staðnum er hægt að taka við MOTO-færslu, en mikilvægt er að framkvæma greiðsluna rétt til að vernda reksturinn þinn. Það fer eftir viðskiptasögu og seljandaflokkun hvort þú getir notfært þér MOTO-færslur hjá Teya.
Hvenær skal nota MOTO-færslur
Notaðu MOTO-færslur aðeins ef eitthvað af eftirfarandi á við:
- Viðskiptavinurinn hefur ekki nettengingu.
- Tilraun með greiðslubeiðnir hefur mistekist, en þú treystir viðskiptavininum.
- Fyrirtækið þitt býður ekki upp á aðrar greiðsluleiðir.
Taka við MOTO-færslu
- Veldu Símgreiðslur í valmyndinni.
- Sláðu inn upphæðina og Áfram.
- Óskaðu eftir eftirfarandi upplýsingar sem má finna á greiðslukorti:
- Kortanúmer
- Gildistími
- CVV/CVC (þrír tölustafir á bakhlið kortsins)
- Veldu Áfram til að staðfesta.
Hvernig meðhöndla ég bókunarkerfi þriðja aðila?
Ef þú heldur utan um greiðslu gesta í gegnum kerfi eins og Booking.com, gætir þú þurft að sækja kortaupplýsingar gestsins áður en þú tekur við MOTO greiðslu.
Samstarfsaðilar með réttan aðgang geta skoðað kortanúmer, gildistíma, CVC og nafn gestsins til að slá inn í posann.
Mikilvægt: Á Booking.com er aðeins hægt að skoða CVC einu sinni. Ef þú getur ekki séð upplýsingarnar gæti það verið vegna tímabundinna takmarkana, að leyfi vantar, eða vegna notkunar á sýndarkort.
Skrifaðu aldrei niður eða geymdu kortaupplýsingar utan öruggra greiðslukerfa.
Lestu handbók Booking.com "Hvernig á að stjórna greiðslu gesta" fyrir frekari upplýsingar.
Öryggi og lágmarka áhættu
MOTO-færslur nota ekki PIN eða 3D Secure (tveggja þátta) staðfestingu, þannig að hætta á endurkröfu er meiri. Fylgdu þessum skrefum til að vernda reksturinn þinn og meðhöndla gögn á öruggan hátt.
Áður en þú vinnur úr greiðslunni
- Staðfestu auðkenni viðskiptavinar: Skráðu fullt nafn, símanúmer og netfang viðskiptavinarins.
- Athugaðu misræmi: Ekki halda áfram ef viðskiptavinur virðist flýta sér, forðast spurningar eða reynir að skipta stórri pöntun á mörg kort.
- Staðfestu við afhendingu: Afhentu vörur aðeins á reikningsheimilisfang. Ef viðskiptavinurinn sækir pöntunina, athugaðu skilríki og aðrar upplýsingar áður en vara/þjónusta er afhend.
Meðhöndlun kortagagna
Til að uppfylla PCI DSS kröfur:
- Sláðu upplýsingar beint inn
- Ekki skrifa upplýsingarnar niður á blað eða í tölvu.
- Ekki geyma gögn
Gjöld og uppgjör
Kostnaður: Aukagjöld geta átt við.
Uppjörsskýrsla býður upp á einfalt yfirlit með heildarupphæð bunka, fjölda færslna og endurgreiðslna, sem og samtals greitt uppgjör.
Vantar þér aðstoð?
Hafðu samband við þjónustuver Teya ef þú hefur frekari spurningar um MOTO-færslur.