Þessi grein hjálpar þér að ganga úr skugga um að posinn þinn sé tilbúinn áður en þú byrjar að taka við færslum. Fylgdu skrefunum hér að neðan til að staðfesta tengingu, uppsetningu og rafhlöðustöðu svo þú getir tekið við færslum án vandræða.
Áður en þú byrjar
Gakktu úr skugga um að posinn þinn sé tilbúinn til notkunar:
- Tenging: Athugaðu hvort tækið sé tengt við Wi-Fi net (mælt með fyrir hraða) eða með farsímatengingu.
- Uppsetning: Gakktu úr skugga að tækið sé tengt réttum samningi og aðgangi.
- Rafhlöðustaða: Gakktu úr skugga um að athuga stöðu rafhlöðunnar í efra hægra horninu á skjánum.
Hvernig tek ég á móti færslum?
Fylgdu leiðbeiningunum hér að neðan til að taka á móti færslu.
Sláðu inn upphæð
- Á aðalvalmynd posans slærð þú inn upphæðina.
- Einnig er hægt að nota reiknivélina með því að ýta á örina hægra megin.
- Athugaðu hvort upphæðin sé rétt.
- Smelltu á áfram.
Greiðsluleið
Spurðu viðskiptavin hvaða greiðsluleið hann vilji nota.
- Snertilaust: Kortið eða sími er sett upp við eftri-hluta posans. Viðskiptavinum þarf að halda kortinum eða símanum á sama stað þar til staðfesting kemur á skjá posans.
- Kort og PIN: Settu kortið inn í neðri hluta posans eða á hægri hlið posans (fer eftir tegund posa). Viðskiptavinur þarf að slá inn PIN númerið sitt og hafa kortið í posanum þangað til að staðfesting kemur á skjá posans.
Afgreiða færsluna
Þegar kortið hefur verið lesið mun posinn hafa samband við banka korthafa fyrir heimild.
- PIN: Korthafi gæti verið beðinn um að slá inn PIN númerið sitt á posann eða staðfesta greiðsluna með símanum sínum.
- Staðfesting: Ekki fjarlægja kortið eða endurstilla skjáinn fyrr en Samþykkt eða Hafnað skilaboð birtist á posanum.
Prenta kvittun
Þegar færsla er samþykkt er hægt að prenta kvittun.
- Kvittun korthafa: Skjárinn mun gefa valkost á að prenta kvittun. Það fer eftir stillingum fyrir kvittun hvort kvittun kemur sjálfkrafa eða hvort smella þurfi á Prenta kvittun.
- Kvittun seljanda: Stillt er posann þannig að kvittanir seljanda prentist ekki sjálfkrafa til að spara pappír. Hægt er að skoða kvittanir með því að smella á Færslur og endurgreiðslur á valmyndinni eða breyta því í stillingum til að þær prentist út sjálfkrafa.
Greiðslumátar sem Teya posar taka við
Posinn þinn tekur við eftirfarandi:
- Snertilaust: Plastkort og kort í stafrænu veski.
- Kort og PIN: Öll helstu kort (Europay, Visa og Mastercard).
- Viðbótargjöld: Ef búið er að virkja í stillingum posans þá er hægt að taka við American Express. Viðbótargjöld geta átt við.