Greinar um þetta efni

Þjórfé

Nú er hægt að taka við þjórfé með greiðslukorti. Þú getur virkjað þjórfé undir Greiðslustillingar í valmyndinni. Þar getur þú annaðhvort stillt hvaða þjórfé valkostir birtast á posanum eða leyft viðskiptavinum að slá inn sérsniðna þjórféupphæð í greiðsluferlinu.  

Virkja þjórfé

Fylgdu þessum skrefum til að kveikja á þjórfé í stillingum:

  1. Smelltu á Valmynd í hægra horni posans.
  2. Veldu Greiðslustillingar
  3. Sláðu inn PIN þegar þess er óskað.
  4. Kveiktu á eiginleika til að gefa viðskiptavinum þínum möguleika á að bæta við þjórfé.

Til að slökkva á þjórfé síðar fylgir þú sömu skrefum og tekur hakið úr reitnum.

Sérsníða þjórfé

Sjálfgefið býður posinn upp á 10%, 15% og 20% sem þjórfé. Þú getur breytt þessum forstillingum í Greiðslustillingum með því að nota - og + hnappana við hlið hvers hlutfalls til að lækka eða hækka það. 

Valkosturinn Þjórféupphæð er alltaf í boði meðan færslan er í gangi, þannig að hægt er að slá inn nákvæma upphæð handvirkt.

Bæta við þjórfé í greiðslu

Þegar búið er að virkja þjórfé birtist valkosturinn að bæta við þjórfé í greiðsluferli.

  1. Sláðu inn upphæðina sem þú vilt rukka og Áfram.
  2. Þá mun gluggi opnast sem býður upp á val á milli 10%, 15% og 20% þjórfé, eða Þjórféupphæð (Sérsniðið þjórfé)
  3. Þegar 10%, 15% eða 20% þjórfé hefur verið valið verður upphæðinni sjálfkrafa bætt við greiðsluupphæðina. 
  4. Notaðu Snertilaust, örgjörva eða segulrönd til að klára greiðslu.

Athugaðu að þjórfésupphæð getur aldrei verið hærri en upphaflega færslan.

 
 
 
Var þessi grein gagnleg?
1 af 1 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig