Í þessari grein munum við leiðbeina þér hvernig á að nota Heimildir. Að sækja heimild gerir þér kleift að geyma ákveðna fjárhæð á greiðslukorti viðskiptavinar sem hægt er að sækja og nýta síðar. Fjármunirnir verða geymdir þar til þú lýkur (nýtir) eða hættir við (ógildir) færsluna, eða þar til heimildin rennur út.
Að sækja heimild gerir þér ekki aðeins kleift að taka frá ákveðna upphæð fyrir tiltekna færslu heldur getur þú einnig athugað hvort greiðslukort viðskiptavinar sé gilt og hafi næga innistæðu.
Fyrir hvern er þetta?
Sem viðskiptavinur Teya getur þú aðeins tekið frá heimild af korti viðskiptavinar ef fyrirtækið þitt er í eftirfarandi rekstri:
- Hótel: Þú getur tekið frá heimild af greiðslukorti viðskiptavinar fyrir tilfallandi gjöldum eins og herbergisþjónustu, hlutum á "mini-bar" eða skemmdum. Þetta tryggir einfalt og fljótlegt útritunarferli og dregur úr þeirri áhættu að gestir fara frá hótelinu án þess að gera upp ógreiddan reikning eða skuld.
- Bílaleiga: Þú getur tekið frá heimild sem tryggingu fyrir hugsanlegu tjóni eða vanskilagjöldum og tryggt að þú fáir fjármuni greidda.
- Leiga á búnaði: Þú getur tekið frá heimild sem tryggingu fyrir hugsanlegu tjóni eða vanskilagjöldum og tryggt að þú fáir fjármuni greidda.
Fyrirtæki í ofangreindum rekstri geta tekið frá heimild sem tryggingu fyrir vöru og þjónustu. Ef þú átt fyrirtæki í öðrum en ofangreindum rekstri og vilt skoða þennan mögulega er hægt að hafa samband við þjónustuver Teya.
Hvernig virkja ég heimildir í Teya posanum mínum?
Þegar þú færð Teya posann er Heimildir eiginleikinn sjálfgefið óvirkur. Til að virkja eiginleikann skaltu fylgja leiðbeiningunum hér að neðan:
- Opnaðu Valmyndina í efra hægra horninu.
- Smelltu á Greiðslustillingar.
- Sláðu inn PIN-númer þitt.
- Skrollaðu niður til að finna Heimildir.
- Virkjaðu Heimildir með því að haka í reitinn.
- Hnappurinn verður grænn þegar búið er að virkja eiginleikann. Þegar hann er óvirkur verður hnappurinn hvítur með svörtum hring.
Hvernig sæki ég heimild með Teya posanum mínum?
Til að sækja nýja heimild í Teya posanum skaltu fylgja leiðbeiningunum hér að neðan.
Ef þetta er í fyrsta skipti sem þú sækir heimild skaltu ganga úr skugga um að kveikt sé á eiginleikanum með því að fylgja leiðbeiningunum hér að ofan.
- Opnaðu Valmyndina í efra hægra horninu.
- Smelltu á Heimildir.
- Smelltu á Ný heimild hnappinn.
- Sláðu inn upphæð heimildar.
- Smelltu á Áfram til að taka frá heimild.
- Notaðu kort viðskiptavinar, snertilaust, örgjörva, eða segulrönd til taka frá heimild.
Fjármunirnir verða geymdir þar til þú lýkur (nýtir) eða hættir við (ógildir) færsluna eða þar til heimildin rennur út.
Hvernig nýti ég heimild með Teya posanum mínum?
Til nýta heimild í Teya posanum skaltu fylgja leiðbeiningunum hér að neðan.
- Opnaðu Valmyndina í efra hægra horninu.
- Smelltu á Heimildir.
- Leitaðu af heimildinni sem þú vilt nýta. Til að finna rétta heimild skaltu annaðhvort nota síuna eða biðja viðskiptavin um að setja kortið sitt að kortaskynjaranum til að finna viðeigandi heimildir.
- Veldu þá heimild sem þú vilt nýta.
- Smelltu á Nýta heimild.
- Sláðu inn PIN-númer stjórnanda til að staðfesta.
Hvernig bakfæri ég heimild í Teya posanum mínum?
Til að bakfæra heimild í Teya posanum þínum skaltu fylgja leiðbeiningunum hér að neðan. Vinsamlegast athugið: Þú getur aðeins ógilt heimild, sem að búið er að nýta, samdægurs og hún var nýtt.
- Opnaðu Valmyndina í efra hægra horninu.
- Smelltu á Heimildir.
- Leitaðu að heimildinni sem þú vilt bakfæra. Til að finna rétta heimild skaltu annaðhvort nota síuna eða biðja viðskiptavin um að setja kortið sitt að kortaskynjaranum til að finna viðeigandi heimildir.
- Veldu þá heimild sem þú vilt bakfæra.
- Smelltu á Bakfæra heimild.
Hvernig endurgreiði ég heimildafærslu í Teya posanum mínum?
Til að endurgreiða heimildafærslu í Teya posanum þínum skaltu fylgja leiðbeiningunum hér að neðan. Athugið að aðeins er hægt að endurgreiða heimildafærslu eftir að heimildin hefur verið nýtt.
- Opnaðu Valmyndina í efra hægra horninu.
- Smelltu á Færslur og endurgreiðslur.
- Leitaðu að heimildafærslunni sem þú vilt endurgreiða. Til að finna rétta heimild skaltu annaðhvort nota síuna eða biðja viðskiptavin um að setja kortið sitt að kortaskynjaranum til að finna viðeigandi heimildir.
- Veldu þá heimildafærslu sem þú vilt endurgreiða.
- Smelltu á Endurgreiða.
Lykilatriði og takmarkanir
- Gildistími: Fjármunirnir verða geymdir í 1 til 30 daga, fer eftir kortategund (Visa/Mastercard) og tegund viðskipta. Athugaðu upplýsingar um færsluna á tækinu þínu til að sjá nákvæman gildistíma.
- Kort sem hægt er að nota: Eins og er má nota Visa og Mastercard fyrir heimildir.
- Gjöld: Þjónustugjöld eru þau sömu og fyrir venjulegar greiðslur.