Greiðslubeiðnir gera þér kleift að taka við greiðslum án vefsíðu eða sérstakrar netgreiðsluáskriftar. Þú býrð einfaldlega til örugga greiðslubeiðni, sendir hann á viðskiptavininn og hann greiðir á öruggri greiðslusíðu Teya. Þetta er fljótlegasta leiðin til að hefja netgreiðslur án forritunar eða flóknari uppsetningar.
Hvernig bý ég til og deili beiðni?
Þú getur búið til greiðslubeiðnir á þrjá vegu, allt eftir því hvað hentar best hverju sinni:
- Þjónustuvefur Teya: Tilvalið til að sérsníða beiðni og bæta við vörulínum
- Teya appið: Hentugt til að senda beiðni hvenær sem er.
- Teya posinn: Frábær lausn þegar viðskiptavinur er á staðnum en getur ekki greitt með hefðbundnu korti í posann.
Upplýsingar í beiðninni
Þegar beiðnin er stofnaður velurðu upphæð og gjaldmiðil. Einnig er hægt að bæta við:
- Gildistíma: Veldu hvenær beiðnin rennur út eða hafðu hann án gildistíma.
- Tilvísun: Bættu við pöntunarnúmeri, reikningsnúmeri eða nafni viðskiptavinar.
- Vörulista: Skráðu vörur, magn og verð svo viðskiptavinur sjái nákvæmlega hvað hann er að greiða fyrir.
- Upplýsingaöflun: Biddu um netfang, símanúmer eða afhendingarheimilisfang við greiðslu.
Deiling: Þú getur sent beiðnina með tölvupósti, SMS, afritað hann beint í spjallforrit (t.d. WhatsApp) eða sýnt hann sem QR kóða.
Hvað sér viðskiptavinurinn?
Þegar viðskiptavinur opnar beiðnina fer hann á örugga greiðslusíðu Teya. Hann getur greitt með korti, Apple Pay eða Google Wallet. Allar færslur fara í gegnum 3-D Secure auðkenningu til að tryggja hámarksöryggi. Að greiðslu lokinni birtist staðfesting og viðskiptavinur getur fengið stafræna kvittun.
Sérsniðið útlit á greiðslusíðu
Greiðslusíðan notar sömu hýstu lausn og aðrar netgreiðslur Teya. Þú getur sérsniðið síðuna að þínu vörumerki:
- Hlaðið upp lógói fyrirtækisins.
- Bætt við tenglum á skilmála og persónuverndarstefnu.
- Skrifað stutt skilaboð/athugasemd til viðskiptavinar.
Yfirsýn og uppgjör
Yfirsýn: Allar beiðnir birtast undir Greiðslubeiðnir (Pay by Link) á þjónustuvefnum. Þar geturðu fylgst með stöðu þeirra í rauntíma.
Uppgjör: Greiðslur eru gerðar upp inn á bankareikninginn þinn samkvæmt uppgjörstíðni samnings eins og aðrar kortafærslur.
Endurgreiðslur
Ef þörf krefur geturðu auðveldlega endurgreitt greiðslubeiðni (að fullu eða að hluta) beint í gegnum Teya þjónustuvefinn. Fjármunirnir berast sjálfkrafa til baka á kort viðskiptavinarins.
Kostnaður
Innifalið í samningi: Greiðslubeiðnir fylgja með posasamningi eða netgreiðslusamningi hjá Teya.
Færslugjöld: Greitt er hefðbundið færslugjald samkvæmt samningi.
Enginn aukakostnaður