Embedded Components gerir þér kleift að bjóða upp á greiðsluferli Teya beint á vefsíðunni þinni. Með því að fella tilbúna greiðslureiti inn á núverandi greiðslusíðu geta viðskiptavinir lokið greiðslu án þess að yfirgefa vefsíðuna.
Hér fyrir neðan er farið yfir helstu kosti Embedded Components og hvað forritarinn þinn þarf til að ljúka uppsetningunni.
Val á greiðsluferli
Þú getur valið á milli Embedded Components og Hosted Checkout eftir tæknilegum forsendum og því hversu mikilli stjórn þú vilt ná á útliti og upplifun:
- Embedded Components: Viðskiptavinurinn helst á vefsíðunni þinni allan tímann. Þú hefur fulla stjórn á útliti og hönnun, en uppsetningin krefst forritunarvinnu.
- Hosted Checkout: Viðskiptavinurinn er fluttur yfir á örugga greiðslusíðu Teya til að ljúka greiðslunni. Uppsetningin krefst lítillar tæknilegrar vinnu, en möguleikar á að sérsníða útlit eru takmarkaðri. Hægt er að bæta við lógói, skilmálum og skilaboðum.
Kostir Embedded Components
- Órofin greiðsluupplifun: Viðskiptavinurinn lýkur greiðslunni beint á vefsíðunni þinni.
- Kortagreiðslur: Greiðslur eru staðfestar í rauntíma.
- Apple Pay: Innbyggður stuðningur við Apple Pay.
- Innbyggð 3-D Secure auðkenning: Korthafar auðkenna sig beint í greiðsluferlinu án þess að vera vísað á aðra síðu.
- Sérsniðið útlit: Þú hefur fulla stjórn á litum, leturgerðum og útliti greiðslusvæðisins svo það samræmist vörumerkinu þínu.
Kröfur fyrir uppsetningu
Uppsetning Embedded Components krefst tæknilegrar þekkingar og aðkomu forritara. Eftirfarandi þarf að vera til staðar:
- API lyklar (e. API keys): Einstök API auðkenni frá Teya sem gera kerfunum kleift að eiga samskipti.
- SDK: Embedded Components SDK sett upp á framenda (e. frontend).
- Session / Greiðslulota: Bakendatenging (e. backend) sem býr til virka greiðslulotu fyrir hverja greiðslu.
- Vefkrækjur (e. webhooks): Stilltur endapunktur sem tekur við tilkynningum um stöðu greiðslna í rauntíma.