Greiðslusíða (e. Hosted Checkout) er örugg og sérsniðin greiðslulausn fyrir netverslanir. Hægt er að nota hana með tilbúnum viðbótum, greiðslubeiðnum eða sérsniðinni API tengingu. Hún veitir viðskiptavinum hnökralaust greiðsluferli á meðan öll meðhöndlun kortaupplýsinga er í öruggum höndum Teya.
Hvernig greiðslusíða virkar
Þegar viðskiptavinur er tilbúinn að greiða er honum vísað yfir á örugga greiðslusíðu Teya. Hann velur sinn greiðslumáta og að lokinni greiðslu er upphæðin gerð upp inn á bankareikninginn þinn.
Upplifun viðskiptavinar:
- Viðskiptavinur velur að ganga frá kaupum á vefsíðunni þinni eða í appi.
- Honum er vísað yfir á sérsniðna greiðslusíðu Teya.
- Hann velur greiðslumáta og lýkur færslunni.
- 3-D Secure auðkenning fer fram í bakgrunni til að tryggja öryggi.
- Viðskiptavinur sér staðfestingu og er vísað aftur á vefsíðuna þína.
Studdir greiðslumátar
Greiðslusíða Teya styður helstu greiðslumáta í öllum tækjum:
- Visa
- Mastercard
- American Express
- Apple Pay
- Google Wallet
Sjálfvirk gengisbreyting (DCC)
Ef viðskiptavinur notar erlent kort getur hann valið að greiða í sínum heimagjaldmiðli með sjálfvirkri gengisbreytingu (Dynamic Currency Conversion).
Það sem þú þarft að vita um DCC:
- Fyrir viðskiptavininn: Þeir sjá upphæðina í eigin mynt og geta valið greiðslugjaldmiðil.
- Fyrir fyrirtækið þitt: Upphæð helst alltaf óbreytt í þínum staðbundna gjaldmiðli
- Aðgengi: DCC virkar sjálfkrafa fyrir gjaldgeng kort. Það er ekki í boði eins og er fyrir Apple Pay greiðslur.
Að sérsníða greiðslusíðuna þína
Þú getur uppfært útlit greiðslusíðunnar þinnar í stillingum inni á þjónustuvef Teya. Allar breytingar sem þú gerir munu sjálfkrafa gilda um netverslunina þína, greiðslubeiðnir og sérsniðnar samþættingar.
- Lógó: Bættu við mynd efst á síðunni. PNG skrár með gegnsæjum bakgrunni virka best.
-
Skilmálar og persónuvernd: Settu inn tengla á skilmála og persónuverndarstefnu sem birtast í fæti síðunnar.
Skilaboð söluaðila: Bættu við stuttum skilaboðum til viðskiptavina (t.d. um afhendingartíma eða skilareglur, hámark 2 setningar).
Að setja upp sérsniðna samþættingu (API)
Ef þú ert með sérsmíðaða vefsíðu eða app getur forritari tengt kerfið með Teya API:
- Forritari býr til greiðslulotu (checkout session) í gegnum API.
- Viðskiptavini er vísað á Hosted Checkout greiðslusíðu Teya.
- Kerfið þitt fær sjálfvirka staðfestingu (webhook) þegar greiðslu er lokið.