Teya býður upp á fjórar leiðir til að taka við greiðslum á netinu: greiðslubeiðnir, greiðslusíða (Hosted Checkout), tilbúin tenging (viðbót) og Sérsníðin greiðslusíða (Embedded Components).
Rétti valkosturinn fer eftir því hvernig þú selur, hvort þú ert nú þegar með vefsíðu eða vefverslun og hversu mikla stjórn þú vilt hafa á uppsetningunni.
Fjórir valkostir í fljótu bragði
| Hvernig selur þú? | Mælt með | Þarf netgreiðslusamning? |
|---|---|---|
| Engin vefsíða. Vilt senda greiðsluhlekk með tölvupósti, SMS eða QR kóða (t.d. símapantanir, reikningar, samfélagsmiðlar). | Greiðslubeiðnir (Pay by Link) | Nei, líka hægt í gegnum posasamning. |
| Eigin vefsíða eða app. Vilt einfalda tengingu þar sem viðskiptavinur greiðir á öruggri greiðslusíðu Teya. | Greiðslusíða (Hosted Checkout) | Já |
| Shopify eða WooCommerce. | Tilbúin tenging | Já |
| Eigin vefsíða eða app. Vilt að viðskiptavinur greiði beint á þinni síðu án áframsendingar. | Sérsníðin greiðslusíða (Embedded Components) | Já |
Greiðslubeiðnir
Greiðslubeiðnir gera þér kleift að taka við greiðslum án þess að vera með vefsíðu. Lestu meira um greiðslubeiðnir hér.
- Best fyrir: símapantanir, reikninga og sölu á samfélagsmiðlum
- Hvernig það virkar:
- búðu til greiðsluhlekk á þjónustuvef Teya, Teya appinu eða posann þinn
- sendu hlekkinn á viðskiptavin með tölvupósti, SMS eða QR kóða
- viðskiptavinur greiðir á öruggri greiðslusíðu Teya
- Kröfur: Vera með virkan samning hjá Teya
Greiðslusíða (Hosted Checkout)
Hosted Checkout gerir þér kleift að bæta Teya greiðslum við þína eigin síðu eða app án þess að byggja alla greiðslusíðuna sjálf/ur. Lærðu meira um Hosted Checkout hér.
- Best fyrir: þína eigin síðu eða app og fyrirtæki sem vilja einfaldari uppsetningu og minna viðhald
- Hvernig það virkar:
- forritarinn þinn býr til greiðslulotu með Teya API
- Viðskiptavinur er sendur á örugga greiðslusíðu Teya til að greiða
- Að greiðslu lokinni fer viðskiptavinurinn aftur á vefsíðuna þína
- Kröfur: Netgreiðslusamingur og aðkoma forritara
Tilbúin tenging
Tilbúin lausn fyrir vefverslanir sem keyra á Shopify eða WooCommerce.
- Best fyrir: Shopify verslanir og WooCommerce verslanir
- Hvernig það virkar:
- settu Teya viðbótina upp í vefverslunarkerfinu þínu
- skráðu þig inn með Teya auðkenninu þínu
- veldu verslunina þína
- viðskiptavinir þínir greiða í gegnum örugga greiðslusíðu Teya.
- Kröfur: Netgreiðslusamingur
Sérsníðin greiðslusíða (Embedded Components)
Sérsníðin greiðslusíða gerir þér kleift að fella greiðslureiti Teya beint inn á þína eigin greiðslusíðu. Finndu út meira um sérsníðin greiðslusíða hér.
- Best fyrir: Sérsmíðaðar vefsíður eða öpp þar sem óskað er eftir fullri stjórn á útliti og notendaupplifun.
- Hvernig það virkar:
- innbyggðum greiðslureitum Teya er bætt beint við greiðslusíðuna þína
- viðskiptavinur klárar greiðsluna beint á síðunni án áframsendingar
- Kröfur: Netgreiðslusamingur og aðkoma forritara