Teya viðbótin gerir þér kleift að taka á einfaldan hátt við netgreiðslum í Shopify eða WooCommerce vefversluninni þinni. Hún er tilvalin lausn fyrir söluaðila sem vilja tilbúna tengingu án þess að þurfa að forrita.
Hvernig viðbótin virkar
Þegar viðskiptavinur gengur frá kaupum í versluninni þinni vísar viðbótin honum á örugga greiðslusíðu Teya. Að greiðslu lokinni fer viðskiptavinurinn aftur í verslunina þína og pöntunin er sjálfkrafa merkt sem greidd.
Studd vefverslunarkerfi
- Shopify: Settu viðbótina upp beint úr Shopify App Store.
- WooCommerce: Settu viðbótina upp úr WooCommerce Extensions Marketplace. Þetta virkar á öllum WordPress vefsvæðum sem keyra WooCommerce.
Stillingar og eiginleikar
Þú getur aðlagað helstu stillingar beint í viðbótinni:
- Tenging við verslun: Veldu hvaða Teya verslun viðbótin tengist. Þetta er gagnlegt ef þú rekur margar netverslanir.
- Áframsending: Veldu hvort viðskiptavinur sjái staðfestingarsíðu Teya eða fari beint á staðfestingarsíðu vefverslunarinnar þinnar.
- Tilkynningar í tölvupósti: Fáðu sjálfvirkan tölvupóst á valið netfang í hvert skipti sem greiðsla tekst.
- Útlit greiðslusíðu: Bættu við lógói, skilmálum, persónuverndarstefnu og skilaboðum á greiðslusíðuna.
Endurgreiðslur
Þegar pöntun er endurgreidd í stjórnborði Shopify eða WooCommerce fer endurgreiðslan sjálfkrafa í gegnum Teya. Þú þarft ekki að framkvæma sérstaka endurgreiðslu í kerfum Teya.
Kostnaður
Mánaðargjald er 3.199kr.- fyrir hvern samning. Þú greiðir síðan færslugjöld samkvæmt samningi.
Hvernig byrja ég?
Áður en þú byrjar: Gakktu úr skugga um að þú sért með Teya auðkennið þitt tilbúið. Fylgdu síðan skref fyrir skref leiðbeiningum fyrir Shopify hér, eða fyrir WooCommerce hér.