Greinar um þetta efni

Endurkröfur

Endurkrafa á sér stað þegar þegar korthafi mótmælir kortafærslu í gegnum sinn útgáfubanka en algengustu ástæðurnar eru þegar viðskiptavinur kannast ekki við færslu á kortinu sínu eða lendir í deilum við söluaðila. Þetta er réttur korthafa sem hefur verið til staðar síðan á áttunda áratugnum. Ef korthafi telur að um óréttmæta eða sviksamlega færslu sé að ræða getur hann mótmælt henni með því að gera endurkröfu í gegnum sinn banka. 

Algengar ástæður fyrir endurkröfu

Hægt er að flokka endurkröfur í fjóra meginflokka: Svik (Fraud), Heimild (Authorisation), Vinnslu (Processing) og Deilur viðskiptavina (Disputes). Þeir hafa undirflokka sem útskýra nánar hvers vegna korthafar telja að þeir ættu að fá peningana sína til baka. Algengar ástæður fyrir deilum korthafa eru:
  1. Óþekkt eða óheimiluð færsla.
  2. Korthafi auðkenndi ekki færsluna.
  3. Korthafar halda því fram að þeir hafi ekki fengið keypta þjónustu eða varning.
  4. Korthafar halda því fram að þjónustan eða varningurinn sé gölluð eða ekki eins og lýst er.
  5. Korthafar halda fram að söluaðili hafi ekki sýnt afbókunarreglur við kaup. 

Þetta ferli er ekki hafið af Teya og seljendur geta ekki komið í veg fyrir það. Þegar eigandi kortsins gerir endurkröfu fer málið í ákveðna röð:

  1. Útgáfubanki fer yfir upplýsingar frá korthafa og sendir endurkröfu í gegnum kortafélögin.
  2. Færsluhirðir fær tilkynningu um endurkröfuna.
  3. Við tilkynnum þér og gefum þér tækifæri til að svara og mótmæla endurkröfunni.

Söluaðila er tilkynnt

Þegar endurkrafa á sér stað er færsluupphæðin dregin frá uppgjöri þínu og þú munt fá tilkynningu í tölvupósti með eftirfarandi upplýsingum um endurkröfuna: 

  • Upphæð viðskiptanna.

  • Ástæða endurkröfunnar.

  • Hvort endurkrafan sé varanleg eða ekki.

  • Sönnunargögn sem þú getur lagt fram til að mótmæla henni.

  • Þú hefur 7 daga til að svara póstinum og áminningarpóstur verður sendur með 7 dögum til viðbótar ef þörf krefur.

Eru gjöld sem fylgja endurkröfum?

Já, söluaðilum er gert að greiða 3.000 kr. fyrir hverja endurkröfu.

Hvernig mótmæli ég endurkröfu?

Þú getur mótmælt endurkröfu ef þú telur kröfu korthafa ólögmæta.

Tryggðu að þú svarir innan frestsins sem tilgreindur er í tilkynningarpóstinum. Nauðsynleg gögn (svo sem afhendingarstaðfesting, samskipti við kortaeiganda eða reikningar) verða að uppfylla eftirfarandi reglur:

  • Snið: Sendu aðeins skrár í PDF eða JPEG formi.

  • Tungumál: Öll sönnunargögn verða að vera á ensku.

  • Engar ytri tengingar: Ekki deila tenglum á Google Drive, SharePoint eða öðrum ytri vefsíðum. Við getum ekki tekið við þeim.

Ef málið fer þér í hag verður upphæð endurkröfunnar bókuð inn á samsvarandi samning.

Finndu hvaða skjöl og gögn þú þarft að leggja fram fyrir hverja tegund endurgreiðslukröfu hér.

Hversu langt aftur í tímann er hægt að gera endurkröfu? 

Korthafi getur gert endurkröfu á færslu allt að 120 daga aftur í tímann. Hafðu samband við þjónustuver Teya ef þú hefur frekari spurningar um endurkröfur.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Við erum stolt að þjónusta þig